Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Árni Sæberg skrifar 26. janúar 2026 16:34 Ný stjórn tók við í Íslandsbanka á mánudaginn. Vísir/Vilhelm Tilnefningarnefnd Íslandsbanka hefur auglýst eftir frambjóðendum til stjórnar bankans, aðeins einni viku eftir að ný stjórn bankans var kjörin á hluthafafundi. Ný stjórn verður kjörin á aðalfundi bankans þann 19. mars, sléttum tveimur mánuðum eftir að núverandi stjórn var kjörin.
Í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallar segir að tilnefningarnefndin gegni ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggi nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Það gerði nefndin á síðasta hluthafafundi bankans mánudaginn 19. janúar, þar sem þeir sjö sem nefndin hafði tilnefnt voru sjálfkjörnir í stjórn bankans. Heiðar Guðjónsson var einnig sjálfkjörinn stjórnarformaður bankans eftir tilnefningu nefndarinnar. Fundurinn sá var einmitt haldinn að kröfu hóps hluthafa sem Heiðar leiddi og krafðist stjórnarkjörs. Fundurinn í mars var þegar kominn á dagskrá þegar hópurinn krafðis hluthafafundar og fyrir lá að á honum færi fram stjórnarkjör. Í tilkynningu bankans nú segir að tilnefninganefndin óski eftir framboðum til stjórnar bankans sem kjörin verði á aðalfundi bankans þann 19. mars 2026. Framboðum skuli skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði gegnum vef bankans fyrir klukkan 16:00 þann 4. febrúar 2025. Tilnefningarnefnd muni ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Fyrirhugað sé að nefndin birti tillögu sína samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund.
Íslandsbanki Kauphöllin Fjármálafyrirtæki Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira