Við látum stjórnast af sértrú í peningamálum Örn Karlsson skrifar 2. febrúar 2026 15:15 Með einni vel skiljanlegri og óhrekjanlegri forsendu ásamt reikningi sem við öll lærðum í barnaskóla má sýna fram á að helsta haldreipi Seðlabanka Íslands og Hagfræðideildar Háskóla Íslands, verðtryggingin, er lítið annað en snara um háls alþýðu Íslands. Í fréttum ríkissjónvarpsins þann 29. janúar 2026 sagði fjármálaráðherrann Daði Már Kristófersson: „Verðbólga er á endanum of margir peningar að elta of fáar vörur.“ Þetta er einmitt hin óhrekjanlega forsenda sem nefnd var í upphafi. Innra virði greiðslumyntarinnar og þar með verðgildi peningamagnsins leitar jafnvægis hvar það samræmist eða fellur að undirliggjandi raunhagkerfi. Búum nú til lítið einfaldað líkan af hagkerfi á þessum peningamagnsforsendum sem fjármálaráðherra vísar til. Gefum okkur að undirliggjandi raunhagkerfi jafngildi 100 einingum greiðslumyntar með innra virðið 10 pr. einingu í jafnvægi. Raunhagkerfið jafngildir þá í upphafi 1.000. Svo gerist það að peningamagnið eykst og verður 110 einingar án þess að raunhagkerfið vaxi. Þá myndast ójafnvægi og þrýstingur til aðlögunar þannig að 110 einingar samsvari raunhagkerfinu. Innra virði greiðslumyntarinnar þarf þá að lækka um tæplega 10%. Þegar aðlögun er yfirstaðin og jafnvægi komið á aftur er innra virðið fallið úr 10 niður í 9,09, eða 1000/110. Verðbólgan reynist um 10% En hvað gerist í okkar einfalda líkani ef helmingurinn af peningamagninu er verðtryggður? Jú það þýðir að helmingurinn af peningamagninu hefur verið tekinn úr sambandi í aðlögunarferlinu, sem leiðir til þess að hinn helmingurinn 50 einingar að viðbættri aukningunni, sem voru 10 einingar rýrna til aðlögunar. Innra virði greiðslumyntarinnar þarf þá að falla niður í um 8,3. Þegar aðlögun er yfirstaðin hefur verðlag hækkað um 20% og leiðin eða verðbólguhalinn verið lengri og sársaukafyllri. Þetta er ekki búið. Í þessu ferli var verðtryggingin í óða önn að framleiða peninga til að halda verðmætum verðtryggða hlutans á pari við upprunalegt verðgildi. Verðtryggingin prentaði peninga til handa handhöfum verðtryggða hlutans þannig að þeir yrðu „jafnsettir“ eftir sem áður. Fjöldi eininga greiðslumyntar í þeirra höndum jókst sömuleiðis um 20%. Í þessu einfaldaða dæmi leiddi 10% aukning peningamagns til aukaprentunar peninga í gegnum verðtryggingu til viðbótar og á endanum til um 20% verðbólgu þegar helmingur peningamagnsins er verðtryggður. Álykta má, út frá þessari æfingu, byggðri á óhagganlegri forsendu, þeirri sem fjármálaráðherra benti á og útreikningum sem við lærðum öll í barnaskóla, að verðtryggingin vinnur gegn verðstöðugleikanum og að hún mismunar handhöfum peningamagnsins. Sömuleiðis má draga þá ályktun að verðtryggingin hamli miðlun peningastefnunnar. Fólkið sem stjórnar peningamálum Íslands, meðal annarra seðlabankastjóri og vara seðlabankastjóri hafa á undanförnum áratugum staðið vörð um verðtrygginguna í verki, í ræðu og í riti. Þetta hafa þessir aðilar haft fyrir stafni, þrátt fyrir að það sé helsta verkefni Seðlabanka Íslands, að lögum, að standa vörð um verðstöðugleikann. Orðið verðbólguvæntingar heyrist reglulega þegar stjórnendur peningamála tala til almennings um peningamál. Að verðbólgan stafi af of miklum verðbólguvæntingum í samfélaginu. En er við öðru að búast þegar fyrir liggur að stjórnendur peningamála vinna beinlínis gegn verðstöðugleikanum? Halda til að mynda verðtryggingunni að almenningi sem hefur viljað hana feiga alla þessa öld eins og skoðanakannanir hafa sýnt. Í heil 5 ár hefur Seðlabanka Íslands mistekist hið lögbundna skylduverk sitt að koma böndum á verðbólguna. Með röðum mistaka, m.a. með ofreistum vöxtum til að ná niður íbúðarverði (sem engum vestrænum seðlabanka dytti í hug) og sértrúarkukli í kringum verðtryggingu hafa peningastjórnvöld leitt þjóðina til verðbólguvæntinga. Ljóst er að peningastjórnendur þurfa fyrst að líta inn á við, laga innri og ytri kerfin tengdum peningum áður en almenningur fær trú. Hrópin á almenning hafa engan tilgang á meðan allt er í molum þar í ranni. Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verðlag Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar