Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2026 08:27 Steinar Jónas Kristjánsson og Otti Þór Kristmundsson. Drangar Otti Þór Kristmundsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Nettó og Steinar Jónas Kristjánsson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs. Báðir koma þeir frá Bónus þar sem þeir hafa starfað samanlagt í um hálfa öld.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að ráðningarnar marki mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Samkaupa sem reka auk Nettó, verslanirnar; Prís, Heimkaup, Krambúðirnar, Kjörbúðirnar og 10-11. „Nýr rekstrarstjóri Nettó – Otti Þór Kristmundsson Otti hefur þegar hafið störf sem rekstrarstjóri Nettó og Kjörbúðanna, en hann byrjaði sem starfsmaður Bónus árið 1990, aðeins ári eftir að Bónus opnaði sína fyrstu búð og hefur starfað í dagvöruverslun í 35 ár og um árabil sem rekstrarstjóri. Otti hefur því umfangsmikla reynslu af rekstri í matvöruverslun og þjónustustarfsemi almennt. „Það er okkur sönn ánægja að fá reynslubolta eins Otta inn í stjórnendateymið. Hans reynsla og þekking mun styrkja verslanir okkar um allt land og við förum því sterkari inn í nýtt ár með hann í okkar teymi“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Samkaupa og Dranga. Upplýsingatækni verður sjálfstætt svið – Steinar Jónas Kristjánsson framkvæmdastjóri Um áramótin voru gerðar breytingar á skipulagi fjármálasviðs Samkaupa þar sem upplýsingatæknideild, sem hingað til hefur heyrt undir fjármálasvið, varð að sjálfstæðu sviði og hefur Steinar Jónas Kristjánsson verið ráðinn framkvæmdastjóri nýs sviðs. Steinar kemur til Samkaupa með tæplega 30 ára reynslu á sviði upplýsingatækni bæði hérlendis sem erlendis en hann hefur frá árinu 2003 leitt upplýsingatæknisvið Bónus. Hann býr yfir mikilli víðtækri reynslu af upplýsingatækni, verslunarlausnum og verkefnastjórnun,“ segir í tilkynningunni. Samkaup hf. rekur 60 verslanir á dagvörumarkaði um allt land, meðal annars undir merkjum Nettó og Prís. Samkaup er dótturfélag Dranga hf. sem er móðurfélag framsækinna fyrirtækja á neytendamarkaði. Systurfélög Samkaupa eru Orkan og Lyfjaval.
Vistaskipti Matvöruverslun Verslun Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira