Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Lovísa Arnardóttir skrifar 3. febrúar 2026 11:56 Annar fuglinn fannst dauður við Tjörnina í Reykjavík. Um var að ræða rauðhöfðaönd. Vísir/Vilhelm Í gær greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N1 í sýnum úr tveimur villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Þessi arfgerð hefur ekki greinst hér á landi síðan 2023.
Viðbúnaðarstig vegna fuglainflúensu hefur verið á óvissustigi síðan í haust og verður áfram í gildi óbreytt að svo stöddu. Í ljósi þessa hefur Matvælastofnun sent út ábendingu til alifuglabænda, þar sem stofnunin leggur áherslu á hertar sóttvarnir til að koma í veg fyrir smit í alifuglum frá villtum fuglum. Aðrir fuglaeigendur eru einnig hvattir til þess að tryggja öflugar smitvarnir við umgengni á sínum fuglahópum og vera vel vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum eða óeðlilegum dauða í þeim og tilkynna án tafar slík tilfelli til stofnunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun, MAST. Þar segir að stofnuninni hafi fyrir skömmu borist ábendingar um dauða fugla á höfuðborgarsvæðinu. Fannst annar fuglinn, rauðhöfðaönd, við Tjörnina í Reykjavík og hinn fuglinn, álft, við Ögurhvarf í Kópavogi. Sýni voru tekin og í þeim greindist skæð fuglainflúensa af gerðinni H5N1. Þetta staðfesti Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum í gær. Sama afbrigði skæðrar fuglainflúensuveiru, H5N1, greindist síðast í júlí 2023 í ritu. Eftir það hefur einungis hitt skæða afbrigði H5N5 fundist. Í tilkynningu segir að lítið sé vitað um uppruna smits en ætla megi að það hafi borist til landsins nýlega með farfuglum, eða að það hafi borist síðasta haust og aðeins uppgötvast núna. Erfðafræðilegar rannsóknir á veirunni munu fara fram og geta varpað ljósi á það hvort hún sé af evrópskum uppruna eða frá Norður-Ameríku. Lítið er vitað um útbreiðslu veirunnar að svo stöddu en engar vísbendingar eru um aukin afföll í villtum fuglum á suðvesturhorni landsins né annars staðar. Matvælastofnun segir hitt afbrigðið, H5N5, hafa greinst í stökum villtum fuglum víða um land síðasta haust, þótt tilfellum hafi farið fækkandi og virðist það hafa fjarað út í nóvember 2025 eða að minnsta kosti ekki fundist eftir það. Hér á landi eru einnig dæmi um að spendýr, þá refir, minnkar og kettir, hafi veikst af þessu afbrigði veirunnar, en síðustu tilfelli voru staðfest í október 2025, þegar þrír refir greindust með fuglainflúensu af afbrigðinu H5N5. MAST hvetur almenning til að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla og villt spendýr sem það finnur. Það er gert með því að smella á „Ábendingar og fyrirspurnir“ á forsíðu www.mast.is. Fólk hvatt til að senda ábendingar Mikilvægt er að lýsa staðsetningu fundarstaðarins vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með. Almenna reglan er að hræ af villtum fugli sé látið liggja. Ef hræ er aftur á móti þannig staðsett að það teljist æskilegt að fjarlægja, til dæmis nálægt híbýlum fólks, þarf að gæta að einstaklings- og sóttvörnum og nota til verksins einnota hanska, hlífðargleraugu og veiruheldar grímur. Hræinu skal þá komið í tvöfaldan plastpoka og farga í almennt sorp samkvæmt leiðbeiningum Matvælastofnunar. Þau afbrigði af fuglainflúensuveirunni sem nú er mest um í Evrópu og víðar valda almennt ekki sýkingum í fólki. Á þetta við um bæði afbrigðin sem greinst hafa hérlendis síðan í haust (H5N5 og H5N1). Einstaka smit hafa komið upp erlendis, en þá hjá einstaklingum sem hafa verið í miklu návígi við sjúka fugla án þess að gæta sóttvarna. Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því mjög litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum. Frekari upplýsingar og aðrar leiðbeiningar má finna á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um fuglainflúensu.
Fuglar Matvælastofnun Matvælaframleiðsla Dýraheilbrigði Reykjavík Kópavogur Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira