Lovísa til Orkuveitunnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. febrúar 2026 15:38 Lovísa Árnadóttir færir sig frá Samorku til Orkuveitunnar. Orkuveita Reykjavíkur Lovísa Árnadóttir hefur verið ráðin í starf samskiptastýru Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Lovísa hefur þegar hafið störf.
Þar segir að Lovísa búi yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði orkumála en hún starfaði í áratug sem upplýsingafulltrúi Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. „Þar bar hún meðal annars ábyrgð á innri og ytri samskiptum, fjölmiðlasamskiptum, miðlun efnis, viðburðahaldi og ímyndarmálum, auk þess sem hún var framleiðandi og þáttastjórnandi hlaðvarpsins Lífæðar landsins.“ Áður starfaði Lovísa um árabil hjá RÚV, meðal annars sem frétta- og dagskrárgerðarmaður. Á dögunum var greint frá því að Hafdís Helga Helgadóttir, umsjónarmaður Morgunútvarpsins á Ríkisútvarpinu, hefði tekið við stöðu Lovísu hjá Samorku. Lovísa hefur einnig starfað við markaðs- og ráðgjafarstörf og setið í stjórnum félaga á sviði orku- og jarðhitamála. Hún er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og B.A. gráðu í bókmenntafræði frá sama skóla. „Orkuveitan er gríðarlega spennandi fyrirtæki með metnaðarfulla framtíðarsýn. Verkefnin og vegferð fyrirtækisins í orku-, nýsköpunar- og loftslagsmálum eru bæði krefjandi og mikilvægt samfélagslegt verkefni. Ég hlakka til að taka þátt í opnu og upplýstu samtali við samfélagið og stuðla að því að nýting auðlinda okkar skapi verðmæti, styðji við sjálfbæra þróun og betra samfélag,“ segir Lovísa. Í tilkynningu sem Breki Logason, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2 og samskiptastjóri Orkuveitunnar síðustu ár, sendir til fjölmiðla segir að Rannsóknir og nýsköpun hjá Orkuveitunni vinni að bættri auðlindanýtingu, kolefnishlutleysi og aukinni orkuframleiðslu. „Mikil áhersla er lögð á virðisaukandi lausnir og öfluga nýsköpun. Meðal verkefna má nefna íslenska djúpborunarverkefni (IDDP) sem Orkuveitan hefur tekið þátt í frá upphafi, rannsóknir og undirbúning nýrra vindorku- og jarðhitakosta, og fjölmörg nýsköpunarverkefni sem hlotið hafa styrki frá t.d. Evrópusambandinu.“
Orkumál Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira