Einfaldar leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Gústaf Steingrímsson skrifar 9. febrúar 2026 10:16 Síðasta áratug síðustu aldar og á fyrstu árum þessarar aldar var almenningi veittur árlegur skattaafsláttur vegna kaupa á skráðum hlutabréfum á íslenska markaðnum. Tilgangurinn með afslættinum var fyrst og fremst að efla hinn unga íslenska hlutabréfamarkað og auka þátttöku almennings á honum meðan hann var að komast á legg. Afslátturinn var afnuminn árið 2002 þrátt fyrir augljósan hvata, en þá var áhersla innan OECD-ríkja að einfalda skattkerfi og leitast við að draga úr ívilnunum en á móti að lækka skatta almennt. Íslendingar spara frekar í innlánum en hlutabréfum Stór hluti sparnaðar landsmanna er með óbeinum hætti í hlutabréfum, fyrst og fremst í gegnum lífeyrissjóðina. Um 69% almennings spara reglulega í dag, og hefur það hlutfall ekki verið hærra frá því að Gallup hóf mælingar á því árið 2007. Í dag á íslenskur almenningur tæplega tvöfalt meira í innlánum en í verðbréfum og hafa innlánin verið minnst helmingi meiri en verðbréfaeign síðastliðin ár, en á árunum þegar skattaafslátturinn var til staðar var þessu öfugt farið. Þá átti almenningur allt að því tvöfalt meira í hlutabréfum en innlánum. Við þetta má bæta að íslenskur almenningur á um 8% af íslenska hlutabréfamarkaðnum með beinum hætti, þ.e. fyrir utan eign almennings í gegnum lífeyrissjóðina. Þetta hlutfall er helmingi hærra í bæði Danmörku og Svíþjóð en síðastnefnda landið má segja að hafi verið í fararbroddi varðandi þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði. Bæta má þekkingu á hlutabréfamarkaði hér á landi Í könnun sem Gallup gerði fyrir Nasdaq og SFF kemur fram að almenningur er líklegri til að kaupa hlutabréf í almennum útboðum en að kaupa reglulega hlutabréf. Það skiptir því máli að hlutabréfaútboð sem fram fara gangi vel. Í þessu samhengi má vísa á Íslandsbankaútboðið sem heppnaðist vel og dró marga nýja einstaklinga inn á markaðinn. Engu að síður virðist meira þurfa til þess að almenningur taki almennilega við sér. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu létu framkvæma könnun fyrir áramót um verðbréfaeign Íslendinga sem var að hluta til byggð á samskonar könnunum sem gerðar hafa verið í öðrum Evrópulöndum. Þegar sá hluti almennings sem á ekki verðbréf var spurður um ástæðu þess sagði þriðjungur Íslendinga ástæðuna vera þá að þeir kunni ekki að fjárfesta eða finnist það of flókið. Þetta er langhæsta hlutfallið í Evrópu og um tvöfalt hærra en Evrópumeðaltalið. Því er mikilvægt að auka þekkingu á markaðnum sem og auka hvata til að auka þátttöku almennings. Hlutabréf eru vissulega áhættumeiri fjárfesting en innlán og mikilvægt að fólk sé upplýst og geri sér grein fyrir áhættunni. Eins er mikilvægt að hafa í huga að hlutabréf eru langtímafjárfesting. Áður hafa komið upp hugmyndir um endurupptöku áðurnefnds skattaafsláttar þegar kemur að fjárfestingu í hlutabréfum, en í því samhengi má vísa til umfjöllunar í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið frá 2018. Fjárfestingarreikningar samhliða skattaafslætti gætu virkað sem vítamínsprauta Fjárfestingareikningar fyrir almenning sem gætu komið til samhliða skattaafslætti myndu auka val almennings á sparnaðarleiðum. Slíkir reikningar hafa verið í boði fyrir almenning víða um Evrópu á síðustu árum og áratugum og bjóða öll Norðurlandanna utan Íslands upp á slíka reikninga. Umgjörð um þá er ekki eins í öllum tilvikum og því mikilvægt að horfa til nágrannaríkja og þeirra þar sem þeir hafa reynst best. Helsti kosturinn við þessa reikninga er annars vegar sá að þeir geta gefið almenningi möguleika á því að færa skattalegt tap á milli tímabila sem er ekki hægt í dag. Hins vegar kunna slíkir reikningar að bjóða upp á að fresta skattgreiðslum af söluhagnaði fram í tímann sem er heldur ekki í boði fyrir almenning í dag. Fyrirkomulagið gæti orðið með þeim hætti að hagnaður er ekki skattlagður fyrr en peningar eru teknir út af reikningnum til að nota í neyslu eða annað. Ef skattaafsláttur yrði aftur innleiddur samhliða upptöku slíkra reikninga ætti að vera kominn í gagnið ansi öflugur hvati til þess að auka áhuga og þátttöku almennings á hlutabréfum. Af þessu tilefni er rétt að benda á ráðstefnu sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu halda ásamt Nasdaq Iceland á morgun, 10. febrúar, í Arion banka og hefst kl. 8.30. Fjallað verður um fjárfestingarreikninga og hvað þurfi til svo að hægt sé að setja slíkt á fót hér á landi. Þar verða spennandi erindi og má þar nefna Markus Mild frá Nasdaq í Svíþjóð sem mun segja frá árangri þeirra í þessum efnum en telja má að Svíum hafi tekist einna best til af Evrópuþjóðunum þegar kemur að útbreiðslu slíkra reikninga meðal almennings. Hér er slóð á viðburðinn þar sem hægt er að skrá sig. Höfundur er hagfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar