„Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 22:20 Ari Edwald lýsir Borgarlínunni við járnbrautarslys. Sýn Ari Edwald, oddviti Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, segist vilja endurskoða Borgarlínuna frá grunni. Eins konar tálsýn hafi verið búin til um verkefnið sem hann líkir við járnbrautarslys.
Í morgun var greint frá því að Ari Edwald sé nýr oddviti Miðflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram í maí. Ari, sem var lengi meðlimur í Sjálfstæðisflokknum, flutti í dag til Reykjavíkur eftir að hafa búið síðustu ár í Portúgal og Garðabæ. „Ég er náttúrulega fæddur og uppalinn Reykvíkingur og hef búið hér lunga minnar ævi, um fimmtíu ár. Það er nú að verða þrettán ár eða svo síðan ég fór að vera í nágrannasveitarfélögunum og flutti í Garðabæinn um 2012,“ segir Ari sem ræddi málin í kvöldfréttum Sýnar. „Þannig að þetta eru töluverðar breytingar fyrir mig en mér finnst það bara skemmtilegt. Ég sagði nú við einhvern í dag sem spurði hvort það væri mikið rask að selja íbúð og kaupa sér húsnæði og koma heim frá Portúgal og ég sagði að ég væri nú varla maður í þau verkefni sem eru fram undan hjá borginni ef ég gæti ekki leyst svoleiðis smáræði.“ Tálsýn Ari segist ekki hrifinn af Borgarlínunni og talar fyrir því að endurskoða skipulagið frá grunni. „Það er eitt að greiða fyrir almenningssamgöngum eins og þau tala fyrir stjórnendur sveitarfélaganna en það krefst þess ekki að það séu teknar í burtu akgreinarnar og bílastæðin og þú sjáir ekki til sólar,“ segir hann. Sérakreingar fyrir strætisvagna séu ásættanlegar en orðræðan hingað til hafi verið eins konar tálsýn. „Því allt eru þetta strætóar þótt það sé farið að kalla þetta hágæða almenningssamgöngur og jafnvel talað um brautarpalla þótt við séum bara með venjulega strætóa með gúmmíhjólum. Það sem mér finnst skapa einhverja tálsýn. Sjáum hér fyrir utan,“ segir hann. Ari vísar þar í nýbirta tillögu að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut sem var auglýst í lok janúar. „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir. Ég viðurkenni að það er of seint að hlusta á Sigmund Davíð varðandi það að það eigi ekki að troða Landspítalanum niður á Hringbraut, það er erfitt að taka það til baka. En hér má enn afstýra miklum mistökum.“ Reynslan styrki hann Ari var mikið til umfjöllunar þegar hann sagði af sér sem framkvæmdastjóri Ísey útflutnings eftir að Vítalía Lazareva sakaði hann um kynferðisofbeldi. Rannsóknin á málinu var felld niður sumarið 2023. Hann segir málið elta sig að einhverju leyti en vonar þó ekki. „Eins og þú réttilega nefnir þá var ég ásakaður en ég var ranglega áskaður og ég gerði það eina sem ég gat gert í þeirri stöðu sem var að kæra málið til yfirvalda til að það fengi formlega meðferð,“ segir hann. „Það tók langan tíma og var erfiður tími en lokaniðurstaða kom í málið og það var 2023. Það eru að verða þrjú ár síðan það var þannig að ég á rétt á því að skilja það mál eftir í fortíðinni, það er að baki.“ Aðspurður hvort það sé eitthvað í því máli sem hann sjái eftir segist hann gjarnan hafa ekki viljað tengjast málinu yfirhöfuð. „Það segir sig sjálft en maður breytir ekki fortíðinni og allt er þetta lífsreynsla þegar uppi er staðið og ég held að það styrki mig að þekkja lífið betur en ég gerði áður.“
Borgarlína Miðflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Fleiri fréttir Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Sjá meira