Meðalgreiðslur öryrkja tæpar 650 þúsund krónur Jakob Bjarnar skrifar 18. febrúar 2026 11:11 Vilhjálmur Birgisson hefur þungar áhyggjur af því að nú sé að myndast öfugur hvati; fólk vilji frekar vera á bótum en fara til vinnu. Og þá hrynur kerfið. vísir/vilhelm Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur þungar áhyggjur af því að myndast sé öfugur hvati fyrir atvinnuþátttöku launafólks sem greint hefur verið með tímabundna örorku. „Ef smyrja á þessu yfir allt,“ segir Vilhjálmur og vitnar í glæný gögn.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur þungar áhyggjur af því að myndast sé öfugur hvati fyrir atvinnuþátttöku launafólks sem greint hefur verið með tímabundna örorku. „Ef smyrja á þessu yfir allt,“ segir Vilhjálmur og vitnar í glæný gögn. Kristján Þórður Snæbjörnsson þingmaður Samfylkingar, áður forseti Alþýðusambands Íslands, hlaut ágjöf frá fyrrverandi félögum sínum í verkalýðsforystunni í tengslum við fyrirhuguð lög um almannatryggingar. Kristján tilkynnti á Facebook-síðu sinni að í gær hafi annarri umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar lokið. „Kjaragliðnun elli- og örorkulífeyris verður stöðvuð líkt og við í Samfylkingunni sögðum fyrir kosningar. Sanngjörn forgangsröðun fyrir fólkið sem flokkar í stjórnarandstöðu hafa sett sig upp á móti og staðið gegn réttlátri kjarabót fyrir öryrkja og ellilífeyristaka,“ segir Kristján. Vilhjálmur var fljótur til svara og bendir á að lágmarkstaxtar verkafólks nái ekki að hækka eins og launavísitalan gerir og væru þau umtalsvert hærri ef svo hefði verið. „Þarf þá ekki líka að lögfesta að lágmarkslaun fylgi launavísitölu til að tryggja að ekki verði kjaragliðnun milli lágmarkslauna á íslenskum vinnumarkaði og launavísitölu?“ Vilhjálmur og Sólveig punda á sinn gamla félaga Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fylgir í kjölfarið og lýsir sig sammála Vilhjálmi. „Hvenær kemur að því að ríkisstjórnin gerir eitthvað til að bæta erfiða stöðu láglaunafólks sem stritar við að framleiða verðmætin og rogast um með fjársvelt velferðarkerfi á bakinu?“ Kristján vill verja stefnu ríkisstjórnarinnar en hans gömlu félagar úr verkalýðsbaráttunni, Vilhjálmur og Sólveig Anna, létu hann ekki komast upp með það. Vilhjálmur flaggar glænýjum tölum máli sínu til stuðnings.vísir/samsett Vilhjálmur segir, í samtali við Vísi, að nú liggi fyrir ný gögn sem þeim voru nýverið afhent, en um er að ræða útreikninga Benedikts Jóhannessonar stærðfræðingi fyrir Starfsgreinasambandið, Samtök atvinnulífsins og fjármálaráðuneytið: „Samkvæmt þeim eru meðaltalsgreiðslur þeirra öryrkja sem fá bæði frá TR og lífeyrissjóðum 645.486 kr. á mánuði. Hjá þeim sem eru á endurhæfingarlífeyri er meðaltalið 680.338 kr. á mánuði,“ segir Vilhjálmur. Hann bætir því við að meðaltöl séu eitt: „Sumir eru langt yfir þessum tölum – en fjölmargir eru verulega undir þeim. Meðaltal segir ekki alla söguna. Það sem skiptir máli er staða þeirra sem eru neðst.“ Öfugur hvati myndast Vilhjálmur minnir á að til samanburðar megi minna á að lægsti taxti hjá Starfsgreinasambandinu og Eflingu er í dag 476.093 kr. á mánuði. „Ef við ætlum að tala um réttlæti, þá byrjum við neðst. Þetta eru nýjustu tölur sem koma beint frá Tryggingastofnun.“ Ástæðan fyrir því að verið er að reikna þetta út fram og til baka er hugmynd um að stofna nýjan örorkusjóð en ástæðan er sú að kerfið er ósanngjarnt; lífeyrisgreiðslur leggjast miklu þyngra á verkamannasjóði en aðra. „Þar er örorkubyrðin langmest en réttindin 15 prósentum lakari en í öðrum lífeyrissjóðum þrátt fyrir sama iðgjald. Að öryrkjum fjölgi svona skart má að einhverju leyti rekja til þess að verkamannavinna er erfiðisvinna og slítandi. En við höfum einnig áhyggjur af því að ef lágmarkslaun á vinnumarkaði eru öfugu megin hryggjar við bætur þá myndast ekki sá hvati sem þarf til að halda fólki á vinnumarkaði.“ Vilhjálmur bendir á, líkt og Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri, að þessu kerfi sé haldið uppi af vinnandi fólki. Og við eyðum ekki sömu krónunni tvisvar. Staða öryrkja og ellilífeyrisþega afar ólík innbyrðis Vilhjálmur vill ekki svo mikið sem svara þeim röddum sem saka þá sem vilja hafa á þessu máli skoðun um hreina og klára illsku. „Menn hafa raunverulegar áhyggjur af því að ef myndast öfugur hvati muni þetta kerfi leiða til þess að öryrkjum muni fjölga. Það bitnar bara á þeim sem hafa lakari réttindi, því það þarf þá að skerða réttindi annarra. Þessir fjármunir verða ekki til í tómarúmi. Það eru skattgreiðendur og vinnandi fólk sem þurfa að standa undir kerfinu. Það þarf sannarlega að tryggja að bæði öryrkjar og ellilífeyrisþegar geti framfleytt sér og haldið reisn. En þar þurfum við að fókusera á hópana sem hafa það verst en ekki smyrja þessu yfir alla. Staða öryrkja og ellilífeyrisþega er afar mismunandi. Þetta þarf að rótargreina, finna þennan hóp sem lægst hefur kjörin og honum þarf raunverulega að hjálpa.“ Vilhjálmur segir að það þurfi að taka inn í reikninginn ótal þætti sem hafa áhrif á stöðu fólks, félagslega þætti og réttindi eins og lægri húsaleigu. Hann bendir einnig á síðu skattgreiðenda þar sem fram kemur að einstæðar mæður með þrjú börn þurfi 1,4 milljón krónur í laun til að hafa samsvarandi ráðstöfunartekjur eftir húsnæðiskostnað og þær hafa nú í gegnum bótakerfið. „Þetta eru háar tölur. Hvert erum við komin?“ spyr Vilhjálmur sem leggur áherslu á að ekki dugi að smyrja þessu yfir allt og alla.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Kjaramál Málefni fatlaðs fólks Eldri borgarar Mest lesið Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Innlent Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Erlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Innlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Innlent Fleiri fréttir Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Sjá meira