Rangfærslur Viðskiptaráðs Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 15:01 Það er villandi þegar Viðskiptaráð dregur fram tölur um veikindafjarveru opinberra starfsmanna frá árinu 2020 og notar þær sem rök í dag. Fyrsta ár Covid-19 einkenndist af fordæmalausum aðstæðum. Framlínustarfsfólk, sem hélt samfélaginu gangandi, var í gjörólíkum aðstæðum en þau sem gátu unnið heima og voru eðli málsins samkvæmt í mun meiri hættu á að veikjast. Fleiri skráðir veikindadagar á opinberum markaði árið 2020 eru því eðlileg niðurstaða af mismunandi starfsaðstæðum fólks á almennum og opinberum vinnumarkaði. Faraldurinn sýndi hversu mikilvæg opinber þjónusta er. Þrátt fyrir þakklæti í garð framlínufólks hafa starfsaðstæður þeirra ekki batnað. Samt heldur Viðskiptaráð áfram gegndarlausum áróðri sínum gegn opinberum starfsmönnum og réttindum þeirra, á þeim forsendum að fyrirtæki séu ekki samkeppnishæf við hið opinbera um starfsfólk. Það eru athyglisverð rök frá fyrirtækjum sem skila methagnaði og er stýrt af launahæstu stjórnendum landsins. Þá er umhugsunarefni að það er í raun almenningur, þar með talið launafólk, sem er látinn borga fyrir þennan áróður án þess að hafa nokkuð um það að segja. Eigendur Viðskiptaráðs eins og bankarnir, Orkuveitan, olíufélögin og matvöruverslanir á borð við Bónus, Krónuna og Hagkaup ættu frekar að nýta hagnað sinn í að lækka vöruverð en að borga fyrir sérhagsmunaáróður. Rangfærslur við samanburð á veikindadögum Viðskiptaráð horfir fram hjá grundvallarmun á talningu veikindadaga. Á opinberum vinnumarkaði eru almanaksdagar taldir. Ef starfsmaður er veikur föstudag og mánudag teljast veikindadagarnir fjórir, því helgin reiknast með. Á almennum vinnumarkaði eru vinnudagar taldir. Ef starfsmaður er veikur föstudag og mánudag teljast veikindadagarnir tveir, því helgin reiknast ekki með ólíkt opinbera markaðnum. Þessi aðferðafræðilegi munur á talningu veikindadaga þýðir að skráð veikindafjarvera lítur út fyrir að vera lengri hjá hinu opinbera, jafnvel þótt raunveruleg fjarvera sé sú sama. Samanburður sem tekur ekki mið af þessu er beinlínis rangur. Réttur til greiðslna í veikindum: heildarmyndin Viðskiptaráð heldur því fram að veikindaréttur sé mun ríkari hjá hinu opinbera. Sú mynd er of einföld. Á opinberum vinnumarkaði er réttur til launa vegna veikinda frá atvinnurekanda almennt lengri. Á almennum vinnumarkaði er hins vegar víðtækari réttur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Heildarrétturinn getur því verið sambærilegur. Dæmi – Starfsmaður í matvöruverslun með 10 ára starfsaldur: 6 mánuðir hjá atvinnurekanda 7 mánuðir úr sjúkrasjóði= 13 mánuðir samtals Dæmi – Opinber starfsmaður með 18 ára starfsaldur (lengsti mögulegi veikindaréttur): 12 mánuðir hjá atvinnurekanda 1 mánuður úr sjúkrasjóði= 13 mánuðir samtals Iðgjöld í sjúkrasjóði eru greidd af atvinnurekendum og eru hluti af heildarlaunakostnaði. Á almenna markaðnum er það 1% af launum en 0,75% á opinbera markaðnum. Greiðslur úr sjúkrasjóði og beinar greiðslur frá atvinnurekanda koma því úr sama vasa. Munurinn liggur fyrst og fremst í fyrirkomulagi, ekki endilega heildarkostnaði. Ástæðan fyrir mismunandi fyrirkomulagi er að opinberir launagreiðendur hafa litið svo á að fjárhagslega komi það betur út fyrir þá að standa straum af greiðslum vegna veikinda beint til starfsmanns heldur en að greiða meira í tryggingar, þ.e. inn í sjúkrasjóði á opinberum vinnumarkaði. Opinberir starfsmenn veikjast frekar í vinnunni Rannsóknir sýna að starfsfólk í mennta,- heilbrigðis-, og velferðarstörfum er líklegra en aðrir hópar á vinnumarkaði til að veikjast vegna mikils líkamlegs og/eða andlegs álags í starfi. Langvarandi álag eykur líkur á langvinnum veikindum. Þá hefur vaktavinna, sem er algeng í opinbera geiranum, verið tengd alvarlegum sjúkdómum, eins og hjarta- og æðasjúkdómum og ákveðnum tegundum krabbameina. Vinnuslys eru einnig tíð í löggæslu og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Að leggja til skerðingu veikindaréttar hjá hópum sem eru útsettari fyrir veikindum vegna starfsaðstæðna er ekki aðeins ósanngjarnt heldur ómanneskjulegt. Kjarni málsins Helsta áskorunin sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir í dag er uppsöfnuð innviðaskuld og mannekla í lykilstörfum. Lausnin er ekki að skerða veikindarétt starfsfólks sem heldur uppi grunnstoðum samfélagsins heldur að bæta mönnun, starfsaðstæður og draga úr álagi. Höfundur er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sonja Ýr Þorbergsdóttir Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Rekstur hins opinbera Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar