Viðskipti innlent

Bestu ís­lensku vöru­merkin 2025 heiðruð í Hörpu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Einar Bárðarson tók við verðlaunum úr höndum Stefáns Einars Stefánssonar.
Einar Bárðarson tók við verðlaunum úr höndum Stefáns Einars Stefánssonar. Mummi Lú

Bestu íslensku vörumerkin 2025 voru heiðruð í Hörpu í gær fyrir fullum sal þar sem þrjátíu tilnefnd vörumerki fögnuðu sterkri stöðu sinni í íslensku atvinnulífi. Meðal vörumerkja sem voru valin voru vörumerki Ölgerðarinnar og 66°N.

Fullt var út úr dyrum þegar Bestu íslensku vörumerkin 2025 voru heiðruð við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.  Í tilkynningu segir að stemningin hafi verið kraftmikil og jákvæð þar sem leiðtogar úr íslensku atvinnulífi, markaðsfólk, mannauðsfólk og fulltrúar fræðasamfélagsins komu saman til að fagna því sem best gerist í íslenskri vörumerkjastjórnun. Myndir frá hátíðinni má sjá neðst í fréttinni.

Alls voru þrjátíu fyrirtæki tilnefnd í ár og það eitt og sér er að hljóta viðurkenningu er mikil viðurkenning, að því er segir í tilkynningu. Í ár var jafnframt bætt við nýjum flokki fyrir vörumerki vinnustaða með færri en fimmtíu starfsmenn sem endurspeglar aukna áherslu á menningu, mannauð og innri styrk fyrirtækja.

Viðurkenningarnar eru veittar af Brandr og hafa frá upphafi haft það markmið að varpa ljósi á mikilvægi vörumerkja í rekstri. Vörumerki eru ekki einungis sýnileg ásýnd heldur stefnumótandi eign sem hefur bein áhrif á samkeppnishæfni, arðsemi og langtíma árangur fyrirtækja.

Viðurkenningarhafar 2025

Persónubrandr ársins: Einar Bárðarson

Besta íslenska vörumerkið á fyrirtækjamarkaði: Ölgerðin

Besta íslenska vörumerkið á einstaklingsmarkaði (50+ starfsmenn): 66°N

Besta íslenska vörumerkið á einstaklingsmarkaði (49 eða færri starfsmenn): Venja

Besta íslenska vörumerki vinnustaðar (50+ starfsmenn): Nova

Besta íslenska vörumerki vinnustaðar (49 eða færri starfsmenn): Orkan

Faglegt og gagnadrifið val

Í tilkynningu segir að valið byggi á vönduðu og gagnadrifnu ferli þar sem styrkur, sérstaða og árangur vörumerkja eru metin út frá skýrum viðmiðum. Að ferlinu komi fulltrúar úr íslensku atvinnulífi og fræðasamfélagi sem tryggja fagmennsku, breidd og trúverðugleika í niðurstöðum.

Segir ennfremur að viðburðurinn í Hörpu staðfesti að íslensk fyrirtæki leggi sífellt meiri áherslu á markvissa vörumerkjastjórnun sem lykilþátt í rekstri – og að sterk vörumerki skipti raunverulegu máli.             

Allir tilnefndir 2025

(Sigurvegarar merktir með feitletrun.)

Fyrirtækjamarkaður

Arion

Ölgerðin

Advania

Payday

Dropp

Hoobla

Einstaklingsmarkaður – 50 eða fleiri starfsmenn

Sky Lagoon

Sýn

66°N

Lyfja

Icewear

Bónus

Blue Lagoon

Einstaklingsmarkaður – 49 eða færri starfsmenn

Happy Hydrate

Venja

Huppa

Prís

Lava Show

Húrra Reykjavík

dóttir skin

Vörumerki vinnustaðar – 50 eða fleiri starfsmenn

Nova

Íslandsbanki

Blue Car Rental

Nox Medical

ELKO

Sjóvá

Vörumerki vinnustaðar – 49 eða færri starfsmenn

Orkan

ÓX

Sahara

Plaio        

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú

Mummi Lú





Fleiri fréttir

Sjá meira


×