Viðskipti innlent

Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hag­kerfinu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sigurður Hannesson ræddi áhrif stríðsins í kvöldfréttum Sýnar.
Sigurður Hannesson ræddi áhrif stríðsins í kvöldfréttum Sýnar. Vísir/Vilhelm/EPA

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri.

„Stríðsátökin eru sannarlega alvarleg, og vonandi breiðast þau ekki frekar út en orðið er. Þarna er mikið í húfi, því stór hluti olíuframleiðslu í heiminum er á þessu svæði,“ sagði hann í kvöldfréttum Sýnar.

„Olía er auðvitað notuð í mjög margt. Samgöngur er mjög háðar olíu: skipaflutningar, flug og bílaumferð. En hún er líka notuð í margvíslegar vörur, þannig að röskun á áfangakeðjum getur haft keðjuverkandi áhrif, svo sannarlega. Hún getur haft áhrif á eftirspurn á heimsvísu og verð, til hækkunar.“

Hvaða áhrif getur þetta haft á okkur á Íslandi?

„Til skamms tíma þá bíðum við og sjáum, og vonandi hefur þetta ekki mikil áhrif næstu dagana og vikurnar. En til lengri tíma litið getur þetta ýkt enn frekar þá stöðu sem er uppi í hagkerfinu. Það er að segja: Valdið enn þá meiri kólnun, og viðhaldið hárri verðbólgu í enn lengri tíma.“

Verðbólgan gæti því hækkað enn meira.

„Það gæti farið þannig, ef þetta ástand dregst eitthvað á langinn. Stjórnvöld verða auðvitað að fylgjast mjög grannt með þróun mála þarna. Þau og Seðlabankinn geta auðvitað ekki stýrt því hvernig olíuverð þróast í heiminum.“

Sigurður sagði að stríðið geti fengið Íslendinga til að huga að mörgu, líkt og að orkuskiptum.

„Við erum mjög háð olíu hér á Íslandi. Við reiðum okkur mjög á hana,“ sagði hann.

„Verðmætasköpun byggir að talsverðu leyti á notkun olíu. Þetta undirstrikar mjög orkuöryggi og mikilvægi þess fyrir okkur, við þurfum að huga meira að því, bæði til skemmri og lengri tíma. Orkuskipti hafa verið mikið til umfjöllunar síðustu árin. Við þurfum þar að gefa í ef eitthvað er, og huga að olíubyrgðum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×