Einstakt tækifæri til að læra um fjármál Kristín Lúðvíksdóttir skrifar 5. mars 2026 08:32 Börn og ungmenni eru fljót að tileinka sér nýjungar samhliða hraðri tækni- og sjálfvirknivæðingu og auknu framboði á vörum og fjármálaþjónustu. Boðleiðir styttast og mun einfaldara er að taka fjárhagslegar ákvarðanir sem áður voru oftast teknar undir leiðsögn fullorðinna. Slíkt kallar á meiri skilning og þekkingu, ekki síst barna og ungmenna. Það er auðvelt að koma sér í vandræði á skömmum tíma, en getur verið afar erfitt að vinna sig út úr fjárhagslegum ógöngum. Fjármálafræðsla veitir öryggi og sjálfstæði Vitað er að fjármálalæsi er kennt víða í grunnskólum landsins en þó liggur ekki fyrir hve víða það er kennt, né hvert þekkingarstig nemenda er. Niðurstöður PISA-kannana í fjármálalæsi erlendis sýna að sterk tengsl eru á milli félagslegra aðstæðna og þekkingar á fjármálum. Það þýðir að börn sem eiga sterkt bakland og eiga reglulegt samtal um fjármál við foreldra, skora að jafnaði hærra í könnunum í fjármálalæsi. Þetta undirstrikar mikilvægi skólanna þegar kemur að fjármálafræðslu og að öll börn fái tækifæri til að byggja upp heilbrigðan fjárhag óháð aðstæðum eða skólahverfi. Gott fjármálalæsi snýst um að skilja hvernig fjármál virka, að bera ábyrgð á eigin fjármálum og taka upplýstar ákvarðanir. Börn sem fá tækifæri til að læra snemma um fjármál og tileinka sér þau á skynsaman máta verða öruggari og sjálfstæðari, bæði sem neytendur og sem þátttakendur í samfélaginu. Fjármálalæsi snýst ekki aðeins um þekkingu á tölum, heldur einnig um hegðun og viðhorf. Þá eykur það einnig möguleika á að verjast svikum. Fjármálaleikar efla Fjármálavit Skemmtileg og árangursrík leið til að efla þekkingu ungmenna hér á landi er þátttaka í Fjármálaleikunum, netkeppni í fjármálalæsi. Þeir fara fram dagana 9. - 20. mars næstkomandi og er haldnir ár hvert í tilefni af alþjóðlegri fjármálalæsisviku. Með þátttöku fá nemendur innsýn í hugtök og verkefni sem þeir munu flestir standa frammi fyrir í framtíðinni, en spurningarnar eru byggðar á þekkingarramma OECD í fjármálalæsi. Keppnin er á milli grunnskóla landsins og því skiptir hópeflið innan skólanna miklu máli. Skólinn sem stendur uppi sem sigurvegari hlýtur peningaverðlaun og sendir tvo fulltrúa fyrir hönd Íslands í Evrópukeppnina í fjármálalæsi í Brussel í maí næstkomandi. Það er því mikil hvatning fyrir nemendur að leggja sig fram og sýna hvað í þeim býr. Jafnframt er þetta góð leið til að brjóta upp kennsluna og tengja við það sem er að gerast hjá ungmennunum. Hátt í helmingur ungmenna á Íslandi stundar t.a.m. fjárhættuspil og þar skiptir máli hvort ungmennin hafi grundvallarþekkingu á fjármálum eða ekki. Fjármálaleikarnir minna okkur á að fjármálafræðsla á ekki heima á jaðrinum, heldur í kjarna menntunar innan veggja skólanna, svo allir hafi jöfn tækifæri til að byggja sér trausta og heilbrigða fjárhagslega framtíð. Það er fræðsluvettvangurinn Fjármálavit sem stendur að keppninni. Hann er rekinn af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og studdur af Landssamtökum lífeyrissjóða. Höfundur er verkefnastjóri fjármálafræðslu hjá Samtökum fjármálafyrirtækja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármálafyrirtæki Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar