Viðskipti innlent

Pipar/TBWA með flesta Lúðra

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Steindi og Auddi eru í aðalhlutverkum í auglýsingu Sýnar.
Steindi og Auddi eru í aðalhlutverkum í auglýsingu Sýnar.

Auglýsingastofan Pipar/TBWA hlaut flest verðlaun á Lúðrinum uppskeruhátíð markaðs-og auglýsingafólks sem haldin var í kvöld. Auglýsing ENNEMM fyrir Sýn, fékk tvenn verðlaun.

Verðlaunahátíðin er haldin af Samtökum íslensks markaðsfólks ÍMARK og var hún haldin í fertugasta skiptið á þessu ári. Pipar/TBWA hlaut fjögur verðlaun fyrir auglýsingaherferð sína ¡Hola! fyrir malbikunarfyrirtækið Colas og hlaut auk þess þrenna Lúðra til viðbótar fyrir auglýsingaherferð sína fyrir Þjóðkirkjuna.

Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður ræddi við Guðmund Pálsson framkvæmdastjóra Pipar og Katrínu Margréti Guðjónsdóttur formann Ímark í beinni í kvöldfréttum Sýnar.

Brandenburg með fimm

Á eftir Pipar/TBWA í fjölda verðlauna kom Brandenburg, með fimm verðlaun, fyrir auglýsingu sína Fátæktargildra fyrir Öryrkjabandalag Íslands og Missum ekki málið fyrir Heima.

Tvist fékk þrjá lúðra fyrir Mottumars auglýsingu sína fyrir Krabbameinsfélagið. ENNEMM hlaut eins og áður segir tvenn verðlaun fyrir Sögulegan samruna fyrir Sýn og fyrir Collab x Birnir sem unnin var fyrir Ölgerðina. Þá var Sögulegur samruni valin besta sjónvarpsauglýsingin að mati fólksins.

Þá vann Cirkus til verðlauna fyrir auglýsingaherferð sína fyrir Prís, Hvíta húsið fyrir auglýsingaherferð sína fyrir Icelandair og Peel fyrir auglýsingaherferð sína fyrir Íslandsstofu.

Vísir er í eigu Sýnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×