Stikla úr Jóhönnu af Örk Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. mars 2026 11:33 Systkinin skemmta sér við að skjóta í riddarann sem þau hafa byggt. Jóhanna af Örk er nýjasta kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar en um er ræða 62 mínútna mynd úr sama heimi og Ástin sem eftir er. Vísir frumsýnir hér stiklu úr myndinni sem fylgir þremur systkinum gegnum árstíðirnar.
Skilnaðarmyndin Ástin sem eftir er, með Sögu Garðarsdóttur og Sverri Guðnasyni í aðalhlutverkum, var frumsýnd síðasta sumar, hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda og áhorfenda og var vinsælasta myndin í Bíó Paradís á síðasta ári. Sú mynd fjallaði um listamanninn Önnu (Saga Garðars) og sjómanninn Magga (Sverrir Guðna) sem eru nýlega skilin en eru enn stödd í millibilsástandi milli sambands og skilnaðar. Lífið heldur áfram, Anna gerir myndlist, Maggi fer á sjóinn og börnin leika sér. Jóhanna af Örk fylgir eftir þessum sömu börnum (sem eru leikin af Ídu Mekkín Hlynsdóttur, Þorgils Hlynssyni og Grími Hlynssyni, börnum leikstjórans) þar sem þau reisa riddarafígúru til að nota sem skotmark. Í gegnum árstíðirnar sjá áhorfendur hvernig leikur, sköpun og eyðing verða hluti af þeirra eigin uppvexti. Sjá einnig: Hlynur Pálmason með þrennu í San Sebastian Framleiðendur myndarinnar eru Anton Máni Svansson fyrir STILL VIVID og Katrin Pors fyrir Snowglobe. Meðframleiðendur eru Mikkel Jersin fyrir Snowglobe og Didar Domehri fyrir Maneki Films. Myndin var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian í fyrra og verður frumsýnd á Íslandi í Bíó Paradís 30. mars næstkomandi. Stiklu fyrir Jóhönnu af Örk má sjá hér að neðan:
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira