Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Sunna Sæmundsdóttir skrifar 12. mars 2026 14:07 Um tíu þúsund tjón er tengjast umferðinni voru skráð á Vís á síðasta ári, eða um tuttugu og átta á dag. vísir/Vilhelm Erlendir ferðamenn valda fleiri alvarlegum slysum en ungir eða ölvaðir ökumenn. Framkvæmdastjóri tjóna og trygginga hjá VÍS telur nauðsynlegt að taka umræðu um hvernig bæta megi umferðaröryggi og fræða hópinn betur.
Samkvæmt opinberum slysatölum sem teknar eru saman af Samgönustofu urðu 8.360 umferðarslys á síðasta ári og inni í því öll slys; banaslys, alvarleg slys, slys með litlum meiðslum og óhöpp þar sem enginn meiðist. Ljóst er að rauntalan er þó mun hærri. „Þegar við skoðum bara árið í fyrra að þá komu rúmlega tíu þúsund tjónsatvik sem geta þá falið í sér fleiri en eitt tjón inn á borð til okkar á öllu árinu, sem þýðir að það eru svona tuttugu og átta á dag,“ segir Reynir Bjarni Egilsson, framkvæmdastjóri trygginga og tjóna hjá VÍS. Hér er bara um VÍS að ræða og er heildartalan því mun hærri. Kostnaður við tjónin nam tæpum fjórtán milljörðum króna hjá VÍS á síðasta ári og er kostnaður allra tryggingafélaga metinn á um fjórtíu milljarða króna. Alvarlegustu slysin í dreifbýli Reynir segir stærstan hluta slysa eða tjóna verða á höfuðborgarsvæðinu og á stofnæðum út frá því. „Algengustu tjónin eru minni tjón, eins og bara þegar fólk er að bakka á bílastæðum, nudd í hringtorgum og eitthvað slíkt en algengustu alvarlegu slysin eru í dreifbýli og þá framanákeyrslur eða útafakstur. Þar er fólk á þjóðvegum á meiri hraða og þá eru slysin oft alvarlegri.“ Skoða þarf leiðir til að fækka umferðarslysum meðal erlendra ferðamanna, að mati framkvæmdastjóra hjá VÍS.vísir/Anton Brink Samhliða fjölgun ferðamanna hefur orðið breyting á samsetningu hópsins sem lendir í tjóni eða slysi. „Það er oft talað um kannski hættulega hópa eins og unga ökumenn og ölvaða ökumenn en erlendir ferðamenn eru að valda fleiri alvarlegum- og banaslysum á ári heldur en þessir hópar sem oftast eru ræddir. Okkur finnst alveg vert að minnast á þá til að fá umræðu um það hvort hægt sé að bæta umgjörðina í kringum.“ Í þeirra hópi eru ferðamenn frá Asíu sagðir valda oftast tjóni á bílaleigubílum. „Það eru ákveðnar forvarnir í gangi til þessara hópa en það er spurning hvort það þurfi að setja upp skýrari reglur eða ramma um hvernig þessum bílaleigumálum er háttað,“ segir Reynir. „Það er ákveðin fræðsla í gangi en það er spurning hvort það sé hægt að setja einhverja skyldufræðslu. Þetta er bara mál sem þarf að ræða með stjórnvöldum og öðrum þátttakendum.“
Umferð Umferðaröryggi Tryggingar Ferðaþjónusta Bílaleigur Samgönguslys Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira