Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Kjartan Kjartansson skrifar 18. mars 2026 07:01 Eygló Egilsdóttir frá Metabolic bauð í heilsurækt í Vestmannaeyjum ásamt aðstandendum Sporthallarinnar. World Class hlaut hnossið í útboði sem var síðar fallið frá. Nú segir Eygló að bærinn virðist hygla World Class í nýju útboði. Vísir Ein þeirra sem hefur kært útboð Vestmannaeyjabæjar á heilsurækt við íþróttamiðstöð bæjarins segir svo virðist sem að það hafi verið sniðið að World Class. Það sé eina fyrirtækið í heiminum sem uppfylli skilmála útboðsins.
Vestmannaeyjabær krefst þess að sá sem fær að reka og byggja upp heilsurækt við íþróttamiðstöðina sé með að minnsta kosti fimm þúsund manns í áskrift og að minnsta kosti einn milljarð króna í eigið fé. Innan við fimm þúsund manns búa í Vestmannaeyjum. Þá vegur sérstaklega þungt í útboðinu hversu margar stöðvar bjóðendur reki annars staðar. Aðstandendur Metabolic Vestmannaeyjar kærðu útboðið til úrskurðarnefndar útboðsmála í síðustu viku. Þeir krefjast þess að úrskurðarnefndin felli úr gildi ákvæðin um áskrifendafjölda, eigið fé og stöðvar í rekstri og að útboðið verði stöðvað þar til endanleg niðurstaða um kæruna liggur fyrir. „Það sem okkur finnst athugavert er að það sé verið að niðurnjörva skilmálana það mikið að það raunverulega henti bara mögulega einum aðila, ekki bara á Íslandi heldur í heiminum,“ segir Eygló Egilsdóttir sem hefur rekið Metabolic í Eyjum síðustu árin. Þó að verkefnið sé boðið út á evrópska efnahagssvæðinu sé World Class eina fyrirtækið sem uppfylli skilyrðin að mestu. „Það lítur út fyrir að það hafi verið búið að ákveða að velja einn aðila og útboðsgögnin hafi verið samin með það í huga,“ segir Eygló ennfremur. Fyrra útboð ógilt Ástæða þess að Vestmannaeyjabær bauð heilsuræktina út á EES-svæðinu til að byrja með er sú að Eygló og félagar hennar kærðu upphaflegt útboð á henni í fyrra. Úrskurðarnefnd útboðsmála komst að þeirri niðurstöðu að bærinn hefði ekki fylgt reglum um opinber útboð, meðal annars með því að meta ekki verðmæti samningsins. Það hefði verið yfir þeim mörkum sem skylda opinbera aðila til að bjóða verk út á EES-svæðinu. Bærinn var talinn bótaskyldur gagnvart kærendunum og gert að greiða þeim um milljón krónur í málskostnað. Eygló segir að bærinn hafi átt í samningaviðræðum við World Class um greiða kærendunum málskostnaðinn. World Class rekur nú heilsurækt í íþróttamiðstöðinni á tímabundnum samningi sem Vestmannaeyjabær gerði við fyrirtækið eftir að upphaflega útboðið var kært í fyrra. Þegar bærinn bauð heilsuræktina aftur út í febrúar voru nú gerðar strangar kröfur um fjölda iðkenda, eigið fé og starfsemi annars staðar. Vilja að jafnræðis sé gætt Eygló segir að hún hefði skilið að krafa væri gerð um haldbært fé frekar en eigið fé þar sem framkvæmdin sem boðin er út sé metin á um helming þess eigin fjár sem gerð er krafa um í útboðinu. Þá átti hún sig ekki á hvernig það hjálpi rekstri stöðvar í Eyjum að vera með stöðvar um allt land. „Frá okkar bæjardyrum séð lítur þetta út eins og þetta sé bara sniðið að þessum eina aðila. Við erum alveg til í að lúta í lægra haldi en að það sé á grundvelli þar sem jafnræðis er gætt á milli aðila,“ segir hún. Tilboðsfrestur rennur út 23. mars. Eygló segist ætla að leggja inn tilboð til bæjarins en hunsa skilmálana sem kærendurnir telja óeðlilega. Afþökkuðu að fyrri rekstraraðili brúaði bilið Í kærunni er rakið hvernig Eygló og Garðar Heiðar Eyjólfsson, maður hennar, leituðu hófanna hjá bæjaryfirvöldum um að byggja upp og reka heilsurækt við íþróttamiðstöðina árið 2024. Í kjölfar viðræðna við bæinn sóttu þau um lóð við miðstöðina í janúar í fyrra. Fjölmiðlar sögðu frá áhuga World Class á Vestmannaeyjum síðar í sama mánuði. Þegar aðstandendur Metabolic ítrekuðu áhuga sinn ákvað bærinn að bjóða heilsuræktina út í ljósi þess að fleiri en einn hefði sýnt henni áhuga. Bæjaryfirvöld völdu World Class í apríl. Leigusamningur fyrri rekstraraðila heilsuræktarinnar rann út 1. júní í fyrra áður en úrskurðarnefndin kvað upp niðurstöðu sína. Þeir buðu bænum að framlengja samning sinn tímabundið á meðan niðurstaða fengist í kærumálið til þess að rof yrði ekki á þjónustunni. Bærinn afþakkaði það boð 4. júní og sagðist ætla að leita annarra leiða. Sama dag og boð Hressó var afþakkað samþykkti bæjarráð Vestmannaeyjabæjar að gera tímabundinn samning við World Class um rekstur heilsuræktarinnar. Rökstuddi ráðið þá ákvörðun með því að það vildi koma í veg fyrir að rof yrði á þjónustunni. Rúmri viku síðar kvað úrskurðarnefndin upp bráðabirgðaúrskurð þar sem hún taldi verulegar líkur á að bærinn hefði brotið lög og féllst á kröfu kærenda um að samningsgerðin yrði stöðvuð. Úrskurðurinn tók ekki til tímabundna samningsins sem bærinn gerði við World Class nokkrum dögum fyrr. Hagstæðari samningur fyrir World Class en Hressó Kærendur benda á í kæru sinni að leigusamningurinn sem bærinn gerði við World Class sé fyrirtækinu mun hagstæðari en fyrri samningur bæjarins var fyrir Hressó. Þannig hafi Hressó greitt bænum nærri því fjórfalt meira fyrir aðgang að sundlaug en World Class gerir nú. Þá kemur fram að í tímabundnum samningi World Class sem gilti til nóvembers í fyrra hafi verið ákvæði sem leyfði fyrirtækinu eða gera breytingar á leiguhúsnæðinu á eigin kostnað. World Class borgar hundrað þúsund krónur á mánuði fyrir aðgang að sundlauginni í Vestmannaeyjum en fyrri rekstraraðili tæpar 390 þúsund krónur samkvæmt kærunni.Vestmannaeyjabær Hætti fyrirtækið hins vegar rekstri, til dæmis ef það fær ekki samninginn við bæinn, á því ári þyrfti bærinn að endurgreiða fyrirtækinu kostnaðinn. Samningurinn hefur verið framlengdur í tvígang síðan. Eigandi útboðsfyrirtækisins sakaði þau um ærumeiðingar Því er haldið fram í kærunni að ráðgjafi útboðsins hafi haft samband við kærendurnar og að það hafi verið í trássi við reglur um að bjóðendum sé óheimilt að hafa beint samband við kaupanda eða ráðgjafa á útboðstíma. Tilefnið var grein sem Eygló og Garðar rituðu í Eyjafréttir 1. mars þar sem þau gagnrýndu meðal annars að „eigandi þessa hlutlausa útboðsfyrirtækis var um langa hríð, og þar til fyrir nokkrum árum, starfsmaður hjá aðilanum sem hafði betur í fyrra, ólögmæta útboðinu“. Eigandinn er í kærunni sagður hafa haft samband í gegnum samskiptaforrit og sagt að ærumeiðingar fælust í greininni. Fyrirtækið Consensa annast útboðið fyrir Vestmannaeyjabæ. Eigandi þess er Birgir Örn Birgisson.
Vestmannaeyjar Líkamsræktarstöðvar Stjórnsýsla Sveitarstjórnarmál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Pringles Páskaegginu stolið Samstarf Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Viðskipti innlent Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Sjá meira