Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Árni Sæberg skrifar 18. mars 2026 11:20 Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion Banka. Vísir/Bjarni Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar.
Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. „Mér finnst eiginlega helstu tíðindin í dag vera að ekki nóg með það að peningastefnunefnd hafi ákveðið að hækka vexti, heldur að nefndin hafi verið klofin í þessari afstöðu sinni. Það voru tveir nefndarmenn sem vildu hækka vexti meira, um hálft prósentustig. Þannig að mér finnst það eiginlega vera svona stóru tíðindin og hversu hörð þessi framsýna leiðsögn, það er að segja skilaboðin fram á við, hversu hörð þessi skilaboð voru, svona í ljósi þess hvernig skilaboðin voru í febrúar fyrir bara rétt rúmum mánuði síðan,“ sagði Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, í samtali við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann að loknum blaðamannafundi í Seðlabankanum í morgun. Mistök í febrúar „Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í framsýnni leiðsögn peningastefnunefndar en í febrúar var ekkert minnst á mögulega hækkun vaxta heldur var frekar talað um hvernig væri hægt að lækka vexti. Voru þau þá eitthvað að mislesa aðstæður þá í febrúar eða hefur orðið svona mikil breyting? „Það er auðvitað auðvelt að vera vitur eftir á en manni finnst að nefndin hafi kannski gert dálítil mistök í febrúar af því að þá var þessi framsýna leiðsögn, þa hljóðaði hún enn þá upp á frekari vísbendingar til vaxtalækkana. Og á sama tíma var samt verðbólgan komin í 5,2 prósent. Hún er búin að vera óbreytt milli funda. Vissulega hafa verðbólguvæntingar hækkað og það hefur auðvitað brotist út stríð í millitíðinni. En manni finnst samt sem áður að þetta sé algjör kúvending, sem hefur gerst á mjög skömmum tíma.“ Stíga skrefið sem var hótað í febrúar Á blaðamannafundinum beindi seðlabankastjóri orðum sínum til verkalýðshreifingarinnar, enda virkjast forsenduákvæði stöðugleikasamninganna svokölluðu í ágúst og allt lítur út fyrir að skilyrði verði fyrir því að slíta samningum. Skilja mátti á seðlabankastjóra að hann vildi að verkalýðshreifingin myndi gjöra svo vel að halda að sér höndum ef til þess kæmi. Hvað fannst þér um þessi skilaboð? „Þetta er kannski að einhverju leyti framhaldið af þeim skilaboðum sem seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri komu með í febrúar. Hins vegar er breytingin núna að þeir eru að hækka vexti og eru einmitt að segja þá: Hafið þið í huga að þetta er staðan núna. Samanborið við það í febrúar þá var þetta kannski meira að ef samningarnir losna þá munum við hækka vexti. Þannig að það þeir stigu svolítið skrefið sem var hótað síðast.“ Þannig telji hún nokkuð skýrt að því hafi verið hótað, að ef þetta forsendaákvæði verður virkjað, að þá verða vextir hækkaðir.
Seðlabankinn Arion banki Efnahagsmál Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Viðskipti innlent Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Neytendur Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Fleiri fréttir Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Sjá meira