Viðskipti innlent

Markaðs­stjóri Domino's á Ís­landi hættur

Atli Ísleifsson skrifar
Ásmundur Atlason.
Ásmundur Atlason.

Ásmundur Atlason er hættur sem markaðsstjóri Domino's á Íslandi. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sex ár þar af fjögur sem markaðsstjóri.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Haft er eftir Ásmundi að hann kveðji fyrirtækið sáttur, glaður og þakklátur fyrir tímann sem hafi einkennst af jákvæðni, skemmtilegum verkefnum og áskorunum. 

„Þetta hefur verið algjör snilld. Domino's er fyrsta vinnuástin mín sem gerir þetta skref þeim mun erfiðara. En á sama tíma finnst mér þetta rétta augnablikið,“ er haft eftir Ásmundi.

Þá segir hann margt spennandi vera framundan og að hann hafi eignast sitt annað barn í febrúar og verði í fæðingarorlofi næstu mánuðina. „Ég hlakka mest til þess í lífinu að vera meira með strákunum. Hvað gerist kemur í ljós. Ég er bjartsýnn og horfi jákvæðum augum til framtíðarinnar. Ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir og mun mæta öllum spennandi tækifærum með opnum huga. Mig langar að þakka öllum sem ég hef unnið með á Domino's og í tengslum við fyrirtækið innilega fyrir samfylgdina undanfarin sex ár,“ er haft eftir Ásmundi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×