Arion banki og Kvika blása af samrunann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. apríl 2026 18:47 Arion banki hefur kynnt nýtt lánaframboð. Vísir/Vilhelm Ekki verður af sameiningu Arion banka og Kviku. Þetta kemur fram í tilkynningu Arion banka þar sem ástæðan er rakin til afstöðu Samkeppniseftirlitsins.
Í tilkynningunni segir að forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna sé lokið. Í dag hafi fulltrúar Kviku banka og Arion banka fundað með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynntu afstöðu sína að loknum forviðræðum. „Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025,“ segir í tilkynningunni. „Samrunaviðræður Arion banka og Kviku banka gengu vel og sáu báðir aðilar mikil tækifæri til að auka skilvirkni í íslensku fjármálakerfi viðskiptavinum og hluthöfum til góðs. Vil ég þakka Kviku banka ánægjulegt samstarf síðustu mánuði,“ er haft eftir Benedikti Gíslasyni bankastjóra Arion banka. „Mikil og vönduð vinna var lögð í forviðræður við Samkeppniseftirlitið og lögðu félögin fram margvíslegar lausnir til að stuðla að virkri og öflugri samkeppni á fjármálamarkaði. Afstaða Samkeppniseftirlitsins til samruna félaganna kemur því nokkuð á óvart og eru vonbrigði.“ Er ennfremur haft eftir Benedikti að Arion banki hafi á undanförnum árum verið í forystu á íslenskum fjármálamarkaði með fjölbreyttri og snjallri fjármálaþjónustu. Bankinn muni óhikað halda áfram á þeirri braut og þróa og efla þjónustu með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi.
Arion banki Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira