Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar 16. apríl 2026 10:17 Reykjavíkurborg er eina höfuðborg Norðurlanda þar sem allir borgarfulltrúar eru í 100% starfi hjá borginni. Meðallaun borgarfulltrúa eru um 1,7 milljónir króna á mánuði, og meðallaun varaborgarfulltrúa eru um 1,1 milljón króna á mánuði. Heildarkostnaður við 23 borgarfulltrúa og 8 varaborgarfulltrúa í Reykjavík er um 700 milljónir króna á ári. Þar af er kostnaður við föst laun varaborgarfulltrúa um 130 miljónir króna á ári, eða um hálfur milljarður á kjörtímabilinu. Það má hæglega lækka þennan kostnað. Ég hef áður vakið athygli á þessu og Viðskiptaráð hefur núna tekið undir þá gagnrýni, en Samfylkingin ver það kerfi sem þau hafa skapað. Kerfi sem borgarbúar treysta ekki. Slæmir stjórnarhættir Árið 2018 var borgarfulltrúum fjölgað úr 15 í 23 fulltrúa þegar Alþingi breytti sveitarstjórnarlögum. Það er fátt sem bendir til að þessi fjölgun hafi skilað sér í betri ákvarðanatöku fyrir borgarbúa. Þvert á móti er upplifun borgarbúa að stjórnsýsla hjá Reykjavíkurborg sé of flókin, ákvarðanir taki langan tíma og kostnaður sé of mikill. Traust til borgarstjórnar er um 13%. Það er ekki bara dýrt að vera með 31 borgarfulltrúa á launum, það er líka slæmir stjórnarhættir. Í hlutafélagi myndu eigendur aldrei samþykkja að öll stjórnin væri í fullu starfi því það veikir stöðu stjórnar varðandi eftirlit og ábyrgð. Það er gott að stjórnarfólk hafi önnur störf og séu í tengslum við atvinnulíf og samfélag. Hlutverk stjórna, hvort sem það er í hlutafélagi eða sveitarfélagi er að að setja stefnu, sinna eftirliti með rekstri og halda stjórnendum ábyrgum. Viðreisn sér tækifæri til breytinga Við í Viðreisn í Reykjavík viljum draga úr kostnaði við stjórnsýslu og færa peningana í þjónustu við íbúa. Við sjáum tækifæri í því að núna stendur yfir endurskoðun á sveitarstjórnarlögum á Alþingi. Það tækifæri ætti að nýta til að breyta lögum þannig að hægt sé að fækka borgarfulltrúum og lækka kostnað. Þetta má gera með einfaldri breytingu á ákvæði 11. greinar gildandi sveitarstjórnarlaga (12. gr. frumvarpsins) um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn. Þar sem segir: 4. töluliður: Þar sem íbúar eru 50.000–99.999: 15–23 aðalmenn. 5. töluliður: Þar sem íbúar eru 100.000 eða fleiri: 23–31 aðalmenn. Ekkert sveitarfélag á Íslandi er með 50 til 90 þúsund íbúa og sú grein því augljóslega óþörf. Með því að fella út 5. tölulið og segja þar sem íbúar eru 50.000 eða fleiri í 4. tölulið er hámarkið sett í 23 aðalmenn og borgarstjórn Reykjavíkur veitt heimild til að taka ákvörðun um fjölda borgarfulltrúa á bilinu 15-23. Á þann hátt er hægt að færa hundruði milljóna króna í þjónustu við borgarbúa. Við í Viðreisn ætlum að gera betur og borgarbúar geta treyst því að við klárum verkefnin. Höfundur skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar