Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 10:00 Forseti FIFA var í stúkunni þegar Íran spilaði æfingaleik við Kosta Ríka á dögunum. Orhan Cicek/Anadolu via Getty Images Þó stríð geysi enn milli Írans og Bandaríkjanna er forseti FIFA fullviss um að Íran muni spila á HM í Bandaríkjunum í sumar.
Rétt tæpir tveir mánuðir eru til stefnu áður en heimsmeistaramótið hefst. Viðræður standa nú yfir um vopnahlé milli Bandaríkjanna, Ísraels og Íran en óvissan drottnar yfir öllu. Íran var eitt fyrsta liðið til að tryggja sér sæti á HM í sumar en þegar stríðsátökin brutust út var þátttaka þeirra á mótinu sett í hættu. Mikil opinber orðaskipti hafa orðið um málið, milli æðstu ráðamanna í bæði ríkisstjórnum og knattspyrnusamböndum Írans og Bandaríkjanna. Íþróttamálaráðherra Íran sagði í síðasta mánuði að Íran gæti ekki mætt á HM miðað við núverandi ástand og Bandaríkjaforsetinn Donald Trump ráðlagði Írönum að halda sig heima, þrátt fyrir að hafa áður boðið þá velkomna. Forseti FIFA, Gianni Infantino, ræddi málið í viðtali við CNBC í gær. Þar sagði hann að Íran myndi mæta. „Við vonum auðvitað að þá verði búið að leysa úr þessum átökum, auðvitað, friðsæl staða myndi sannarlega hjálpa. En Íran verður að koma. Þeir eru fulltrúar sinnar þjóðar. Þeir hafa öðlast þátttökurétt. Leikmennirnir vilja spila,“ sagði Infantino. Infantino heimsótti íranska landsliðið nýlega í æfingabúðum þess í Tyrklandi. Hann segir leikmenn hafa sagt sér að þeir vilji spila. „Þeir eiga að spila, íþróttir eiga að standa utan stjórnmálanna. Við búum auðvitað ekki á tunglinu, heldur á jörðunni, og erum meðvituð um stöðuna. En jafnvel þó enginn sé að reyna að byggja brýr og styrkja sambönd, þá munum við gera það,“ sagði Infantino einnig. Íran fékk höfnun frá FIFA þegar óskað var eftir því að færa leiki Írans til Mexíkó. Allir leikir Íran eru á dagskrá í Bandaríkjunum. Liðið er í riðli sem verður spilaður á vesturströnd Bandaríkjanna, með Belgíu, Nýja-Sjálandi og Egyptalandi.
FIFA HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira