Læknisþjónusta á ferðalögum Ágúst Mogensen skrifar 24. apríl 2026 11:01 Fyrr í vikunni vöruðum við hjá Verði tryggingum í fjölmiðlum við læknastofunni Clinic Diamond á Kanarí vegna svikamála sem komið hafa upp í tengslum við stofuna. Starfsfólk á vegum stofunnar hefur bæði of meðhöndlað fólk og rukkað það svo himinhár upphæðir í kjölfarið. Þetta er í fyrsta og vonandi eina skiptið sem Vörður varar við einstaka læknastofu en í ljósi þess fjölda Íslendinga sem heimsækir eyjuna ár hvert var ákveðið að feta í fótspor norsks tryggingingafélags sem einnig hefur varað við læknastofunni. Árið 2025 fóru 78% Íslendinga erlendis samkvæmt könnun Ferðamálastofu og er mældur ferðavilji fyrir árið í ár svipaður. Sólarferðirnar heilla flesta og algengustu viðkomustaðir Spánn og Portúgal. Sem betur fer þurfa fæstir að leita til læknis á ferðlögum en þegar og ef þess þarf, er mikilvægt að vita hvert er best að leita til að fá rétta og góða þjónustu. Svikamál Þó í þessu umrædda tilfelli sé um staðbundin tilvik á Kanarí að ræða þar sem íslenskir ferðamenn eru rukkaðir um fáheyrðar upphæðir fyrir einfalda læknisþjónustu. Þá fylgja svona dæmi oftast sömu uppskrift. Fólk á besta aldri leitar sér aðstoðar í góðri trú vegna veikinda á litlum læknastofum. Fólkið mætir góðu viðmóti og að því virðist frábærri þjónustu sem breytist í andstæðu sína, ofgreiningu, óþarfa læknisaðstoð og himinháan reikning. Fólk greiðir ýmist með korti eða reiðufé sem það sækir í hraðbanka, allt upp í 6 milljónir í útlagaðan kostnað. En hvernig geta grandlausir ferðmenn varið sig fyrir svona svikagildrum? SOS til bjargar Það fyrsta sem fólk ætti að gera er að leita til viðurkenndra aðila eins og SOS neyðarþjónustu til að fá meðmæli um hvaða aðila er best að leita til á þeim stað sem fólk er statt ef veikindi bera að garði. Einnig getur fólk haft samband beint við sitt tryggingafélag og fengið ráðgjöf. Ef um er að ræða hópferð með fararstjóra er gott að ráðfæra sig við hann. SOS International er alþjóðleg neyðarþjónusta vegna veikinda og slysa sem ferðamenn hafa aðgang að allan sólarhringinn gegnum ferðatryggingar, hvort sem er gegnum kortatryggingar eða heimilistryggingar. Starfsfólk SOS International (http://www.sos.eu) veitir ráðgjöf, t.d. hvort best er að fá meðferð á staðnum eða fara fyrr heim auk þess að sjá um breytingar á flugi. Á heimasíðu SOS er gagnvirkt götukort sem beinir þér á næstu heilsugæslu eða spítala sem þau mæla með. SOS staðfestir að ferðatrygging sé fyrir hendi og greiðir fyrir þá þjónustu sem þú færð, sé málið bótaskylt. Þannig er frekar komið í veg fyrir að ferðfólk lendi í klónum á svikastarfsemi með tilheyrandi kostnaði og skaða. Hér er ekki átt við þegar um neyðartilvik er að ræða en þá á alltaf að hringja strax í neyðarnúmer í því landi sem viðkomandi er í, eins og 112 í Evrópu og 911 í Bandaríkjunum og biðja um sjúkrabíl. Evrópska sjúkratryggingakortið Þá er vert að minna á að mikilvægt er að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið meðferðis á ferðalögum í EES löndum. Með því að framvísa því greiðir þú sama verð fyrir þjónustu í opinbera heilbrigðiskerfi þess lands og íbúar þess greiða. Hægt er að sækja um kortið á vefnum island.is og best er að gera það a.m.k. hálfum mánuði fyrir ferðina. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar