Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Kjartan Kjartansson skrifar 27. apríl 2026 13:20 Viðræður hafa staðið yfir á milli Faxaflóahafna og Njaðar Holding um lóð undir mögulega verksmiðju á Grundartanga. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Hafró telur að kanna þurfi áhrif magnesíumverkamiðju á Grundartanga á loftslag þar sem hún gæti dregið úr getu sjávar til þess að taka upp koltvísýring og þannig verið „andstæða loftslagsverkfræðilegra aðgerða“. Fyrirtækið segir starfsemina ekki eiga að hafa áhrif á kolefnisbindingu sjávar.
Félagið Njörður Holding hefur hug á því að reisa 50.000 tonna magnesíumverksmiðju á Grundartanga. Hún á að byggja á nýrri aðferð til þess að vinna magnesíummálm úr sjó með skilvirkari og umhverfisvænni hætti en tíðkast hefur, ef marka má yfirlýsingar fyrirtækisins. Verksmiðjan þarf um fjörutíu milljónir rúmmetra af sjó á ári samkvæmt umhverfismatsáætlun sem Njörður holding lagði fram í vetur. Ætlunin er að taka sjó á um þrjátíu metra dýpi í fimm hundruð til þúsund metra fjarlægð frá landi. Þeim sjó verður svo veitt aftur til baka eftir að búið er að vinna magnesíummálm og klór úr honum. Eitt fjögurra atriða sem Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun leggur megináherslu á í áliti sínu á áætluninni er að aðstandendur verkefnisins láti meta hvaða áhrif gríðarlegt gegnumstreymi sjávar sem starfsemin kallar á hafi á efnabúskap sjávar og lífríki hans. Hafrannsóknastofnun vill að áhrif affalls frá verksmiðjunni á loftslag og umhverfi sjávar verði metin sérstaklega þar sem vinnslan breyti efnasamsetningu og eðlisþyngd sjávarins umtalsvert. Telja það villandi að segja ferlið draga úr kolefnisbindingu Eftir að magnesíum verður fellt úr sjónum verður affallið eðlisþyngra en náttúrulegi sjórinn. Því telur Hafró að affallið muni hafa tilhneigingu til þess að sitja við sjávarbotninn. Þá hafi magnesíumjónir hlutverk við að stýra svonefndum lútstyrk sjávar, sýrustigi hans og leysni kalsíumkarbónats. Lækki affallið lútstyrk sjávar eins og gerist þegar kalsíumkarbónat fellur út missi sjórinn getu til þess að binda koltvísýring. „[M]á því segja að um andstæðu loftslagsverkfræðilegra aðgerða sé að ræða. Gera þarf grein fyrir þessu við mat á umhverfisáhrifum þar sem áhrif framkvæmdarinnar á loftslag og umhverfi sjávar verða skoðuð,“ segir í umsögn Hafró um matsáætlunina. Utanríkisráðherra hafnaði í fyrra umsókn vísindarannsóknafélags sem vildi gera tilraun með loftslagsverkfræðilega aðgerð í Hvalfirði. Til stóð að veita basalausn út í sjóinn til þess að kanna hvort hægt væri að örva kolefnisupptöku sjávar án þess að valda frekari súrnun hans. Ráðherrann taldi lög og reglur um slíkar tilraunir skorta. Fulltrúar Njarðar holding svöruðu áhyggjum Hafró og sögðu það vísindalega villandi að lýsa verksmiðjuferlinu sem andstæðu aukins lútstyrks sjávar. Ef affall verksmiðjunnar verði hlutleyst áður en því verður veitt út í sjó verði heildarlútstyrkur nálægt gildum náttúrulegs sjávar. Fyrirtækið segist ætla að meta áhrif útstreymis frá verksmiðjunni á sýrustig, lútstyrk og jónir í hafinu. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun beinir því til Njarðar holding að meta þurfi áhrif starfseminnar á getu sjávar til að binda koltvísýring og hvernig affallið þynnist og dreifist um sjóinn og hvort það hafi áhrif á efnabúskap sjávar. Vilja upplýsingar um möguleg þráavirk efni Hafró vill einnig að metið verði sérstaklega hvort þráavirk efni geti myndast í ferlinu og hvernig brugðist sé við því ef þau verða til enda sé það lykilatriði þegar áhrif starfseminnar á heilsu séu metin. Þráavirk efni eru efnasambönd sem brotna hægt eða ekki niður í náttúrunni og hafa hættuleg áhrif á heilsu manna. Fyrirtækið segir efnafræðina fyrir myndun þessara hættulegu efnasambanda ekki vera til staðar í starfseminni sem það vill stunda á Grundartanga. Við umhverfismatið verði þó metið hvort raunhæft sé að þau geti myndast og farið yfir mögulegar ráðstafanir, vöktun og mælingar ef við á. Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri Njarðar Holding.Vísir Þá ætlar Njörður holding að nota hundruð þúsunda tonna af basa við framleiðsluna á ári. Hafró bendir á að honum geti fylgt verulegt magn snefilmálma og að sýna þurfi fram á að þeim verði ekki veitt til sjávar. Fyrirtækið segir að margir málmanna falli út og mælingar sem það hafi gert bendi til þess að styrkur snefilmálma sé innan eðlilegs styrks í náttúrulegum sjó. Meginhluti þungmálma safnist upp við rafgreiningu og berist ekki í hafið. Geri grein fyrir efnum og úrgangi Auk mögulegra áhrifa starfseminnar á efnabúskap sjávar og lífríki leggur Skipulagsstofnun megináherslu á að umhverfismat verksmiðjunnar beinist að þremur þáttum. Hún vill að greint verði frá öllum þeim hráefnum, orku og öðrum auðlindum sem þarf til starfseminnar og þeim efnum sem losna frá henni. Nota þurfi umtalsvert magn efna sem geti verið hættulegt heilsu fólks og skaðað umhverfið. Greina þurfi frá þeim efnum, magni, helstu hættum og ráðstöfunum til þess að fyrirbyggja að hætta skapist við geymslu þeirra, flutning eða notkun. Náttúrufræðistofnun minntist á að til stæði að safna kalsíumkarbónati og kalsíumsúlfati í manngerða tjörn en áætlað væri að 4,5 tonn af hvoru efni um sig yrðu til á klukkustund við framleiðsluna. Stofnunin vill að greint verði frá því hvar slíkri tjörn verði komið fyrir og hvernig mengunarvörnum verði háttað. Lýsi hvernig aðferðin er betri en þær sem fyrir eru Fjórða atriðið sem Skipulagsstofnun leggur höfuðáherslu á er að Njörður holding geri grein fyrir hvernig framleiðsluaðferð fyrirtækisins er frábrugðin þeim sem hafa tíðkast til þessa og hvort og þá hvaða umhverfislegi ávinningur hlýst af henni. Stefán Ás Ingvarsson, stofnandi Njarðar holding, sagði Vísi í vetur að aðferðin sem hann hefur þróað eigi að vera laus við eitraðan úrgang og koltvísýringslosun sem algengasta framleiðsluaðferð magnesíummálms hefur í för með sér. Hún þurfi einnig fjörutíu prósent minni orku en eldri aðferðir. Áætluð orkuþörf verksmiðjunnar er metin níutíu megavött. Af þeim eru 75 megavött sögð eiga að koma frá dreifikerfi Landsnets en fimmtán frá hitaveitu frá affallsvarma frá kísilveri Elkems á Grundartanga.
Stóriðja Umhverfismál Loftslagsmál Stjórnsýsla Hvalfjarðarsveit Kjósarhreppur Hafið Mest lesið Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira