Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar 6. maí 2026 12:02 Utanríkismálanefnd hefur nú fengið yfirlit um samskipti utanríkisráðherra við ráðamenn í Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Óskað var eftir þessum gögnum þann 27. mars sl., eftir því sem fram kemur hjá Diljá Mist Einarsdóttur sem á sæti í nefndinni, en gögnin virðast fyrst hafa borist nefndinni 5. maí. Frétt Morgunblaðsins dregur upp skýra mynd: ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var vart tekin til starfa þegar utanríkisráðherra hóf að ræða nýtt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu við norræna ráðamenn og framkvæmdastjórn ESB — áður en Alþingi kom saman og löngu áður en þjóðaratkvæðagreiðsla var kynnt. Samkvæmt gögnunum hófust þessi samskipti þegar 6. janúar 2025 og aðeins níu dögum síðar, 15. janúar, átti ráðherra fundi í Brussel með æðstu embættismönnum ESB þar sem fyrirætlanir um þjóðaratkvæðagreiðslu voru kynntar. Í framhaldinu voru haldnir tugir funda þar sem rætt var um tímalínur, stöðu samningskafla frá 2013 og mögulegt framhald viðræðna, og af yfirlitinu sést að fjallað var um tímasetningar, sviðsmyndir og stuðning einstakra ríkja áður en málið kom til formlegrar meðferðar á Íslandi. Málið kom síðan fyrst fram á Alþingi Íslendinga í byrjun mars 2026. Sú tímaröð sem liggur fyrir vekur óhjákvæmilega spurningar: er þetta ný venja við stjórnarframkvæmd mikilvægra mála — að undirbúningur þeirra eigi sér stað í samtali við erlenda aðila áður en Alþingi og íslenska þjóðin fá málið til umfjöllunar? Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar hefur sagt að þessi samskipti séu „algerlega óviðkomandi þinginu“. Er þetta einhver ný skýring á því í hverju trúnaður utanríkisráðherra við utanríkismálanefnd er falinn? Á sama tíma og þessi víðtæku samskipti áttu sér stað lá fyrir að Evrópusambandið var að undirbúa refsitolla á járnblendi, mál sem snerti íslenska atvinnustarfsemi beint. Um það segir Haraldur Benediktsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi: „Norsk stjórnvöld hófu þegar undirbúning að hagsmunagæslu. Þegar ég fékk upplýsingar um málið um sumarið komst ég að því að íslensk hagsmunagæsla var veik. Ég aflaði mér upplýsinga m.a. frá Noregi.“ Þessi samanburður talar sínu máli. Hvar liggur fyrsta skylda stjórnvalda í slíkum aðstæðum? Samkvæmt stjórnarskrá bera ráðherrar ábyrgð á allri stjórnarframkvæmd, ekki aðeins formlegri ákvarðanatöku heldur einnig undirbúningi mála og framsetningu þeirra gagnvart þingi og almenningi. Þegar um er að ræða mál af þessari stærðargráðu verður að gera ráð fyrir að meðferð þess fari fram á formlegum vettvangi ríkisstjórnar, í nefndum Alþingis og fundarsölum þess, þar sem ábyrgð er skráð og rekjanleg. Hvers vegna liggja þá fyrir ítarleg gögn um samskipti og undirbúning málsins á alþjóðavettvangi áður en það kemur til efnislegrar meðferðar á Alþingi? Það er með ólíkindum að þessi gögn skuli leiða til þess að spurning vakni um trúnað utanríkisráðherra gagnvart þingi og þjóð, ekki síst utanríkismálanefnd sem ráðherranum ber að upplýsa. Þetta er ekki spurning um hvort slík samskipti eigi sér stað, heldur hvar í stjórnskipulegu ferli ákvarðanir eru í raun mótaðar — og hvert hlutverk Alþingis er í því ferli. Var þetta allt, eða liggja fyrir fleiri samskipti sem Alþingi hefur ekki fengið upplýsingar um? Sjálfstætt rannsóknaefni er síðan hvers vegna valið var að upplýsa ekki um þetta allt saman í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni sjálfri, og í hvaða vestrænu lýðræðisríki slík málsmeðferð þætti eðlileg. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar