Bílastæðadans Gunnar Sær Ragnarsson skrifar 11. maí 2026 16:52 Íbúar höfuðborgarsvæðisins kannast allir við það að keppast við það að finna bílastæði. Það reynist sífellt erfiðara þegar framboð þeirra mætir ekki eftirspurn á ákveðnum svæðum. Enn verra verður það þegar bílastæðið reynist gjaldskylt og jafnvel þarf ökumaður að rannsaka hvaða félag rekur hvaða stæði. Þessi höfuðverkur er manngerður vandi sem raungerist vegna pólítískra áherslna, sem enginn áhugi er fyrir nú þegar framkvæmd þeirra liggur fyrir. Ókeypis afnot af mikilvægu plássi Bílastæði eru áhugavert fyrirbæri. Eitt bílastæði er lítið og afmarkað autt svæði, sem þú geymir ákveðna eign á. Þrátt fyrir þetta er verðmæti þess óumdeilt. Verðmætið gengur á milljónum og eftirspurnin er mikil. Sérstaklega á svæðum þar sem mikið er um verslun og þjónustu. Sú þróun hefur átt sér stað sum staðar á höfuðborgarsvæðinu að gera nánast hvert bílastæði gjaldskyld í stórum stíl. Það hugnast okkur í Framsókn í Kópavogi ekki. Við teljum að venjulegt fólk eigi ekki að þurfa að greiða glórulausar fjárhæðir né sektir fyrir það að sækja verslun eða þjónustu í bænum, sækja fólk heim eða jafnvel fara heim til sín. Við viljum halda þeirri áherslu áfram á lofti að bílastæði verði ekki gjaldskyld í Kópavogi. Bílastæði eiga að fylgja fasteignum Því miður hefur áherslan verið sú síðustu ár að takmarka framboð bílastæða. Sérstaklega við nýbyggingar í von um að selja ákveðnar fasteignir til þeirra sem vilja lifa „bíllausum lífstíl“. Vandinn er sá að eftirspurn eftir þeim eignum er afar lítil, en það er staðreynd að margar slíkar íbúðir seljast illa eða jafnvel ekkert. Fasteignasalar rekja það til bílastæðaleysis og hafa fullyrt það í rituðu máli og viðtölum við fjölmiðla. Það sama á við um atvinnuhúsnæði, en atvinnurekendur hafa ekki sýnt áhuga á því að reka sína starfsemi í byggingu þar sem fá sem engin bílastæði fylgja. Við í Framsókn í Kópavogi heyrum þessar raddir og viljum endurskoða aðalskipulag Kópavogs með þær að sjónarmiði. Alla vega eitt bílastæði verður að fylgja hverri fasteign, og helst fleiri. Samspil samgöngukosta Nánast hver einasta fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu rekur alla vega einn fjölskyldubíl. Það er ekki að fara að breytast neitt í bráð óháð deilum og pólítískum áherslum hverju sinni. Fólk þarf enn að komast leiða sinna og fjölskyldubíllinn er besta leiðin til þess að svo stöddu. Að sjálfsögðu viljum við efla almenningssamgöngur og gera það öruggt og fljótlegt fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur að ferðast. Þetta snýst um að gefa fólki raunverulegt val án þess að fórna einum samgöngukosti fyrir annan. Markmiðið er að finna jafnvægi, en þannig gefum við raunverulegt val í stað þess að neyða íbúa til að nota ákveðinn samgöngukost. Höfundur er varabæjarfulltrúi og situr í 3. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar