Dúx í MH og talar fjögur tungumál Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2026 14:51 Lilja Rut Halldórsdóttir semidúx og Sóley Júka Magnúsd. Kuwahara dúx ásamt Helgu rektor Menntaskólinn við Hamrahlíð Sóley Júka Magnúsdóttir Kuwahara er dúx Menntaskólans við Hamrahlíð í ár. Alls voru á föstudag brautskráðir 127 nemendur úr skólanum. Sóley var á náttúrufræðibraut og útskrifaðist sem dúx með 9,88 í meðaleinkunn.
Sóley hóf menntaskólagönguna í Þýskalandi en þangað flutti hún eftir að hafa búið með foreldrum sínum í Japan í fimmtán ár. Sóley er hálfjapönsk og flutti til Japans þegar hún var eins árs. „Við bjuggum í Þýskalandi í eitt og hálft ár eftir það. Okkur pabba langaði að prófa að búa í Evrópu eftir að hafa verið í Japan í sextán ár,“ segir Sóley í samtali við fréttastofu. Hún hafi því tekið eitt og hálft ár í menntaskóla í Þýskalandi en þegar fjölskyldan flutti heim til Íslands hafi hún ákveðið að ljúka náminu í MH. Mamman kenndi í MH „Mamma mín kenndi japönsku í MH í einhvern tíma og mömmu og pabba fannst MH mjög góður skóli,“ segir hún um það hvers vegna MH hafi orðið fyrir valinu. Auk þess að dúxa á náttúrufræðibraut fékk Sóley hæstu mögulegu einkunn í íslenskuáfanga á IB-brautinni sem er aðeins hægt að stunda nám við í MH. Námið er að mestu kennt á ensku og um það segir á heimasíðu MH: „Krefjandi bóklegt nám sem lýkur með samræmdu prófi. Það veitir svipuð réttindi til framhaldsnáms og íslenska stúdentsprófið þótt það sé í ýmsu frábrugðið.“ „Þegar ég flutti aftur til Íslands var ég ekki viss hvort ég vildi fara í háskóla erlendis þannig að ég ákvað að taka IB-námið fyrst en MH er eini skólinn sem er með það, en eftir eitt ár vildi ég bara læra á íslensku,“ segir Sóley sem skipti þá yfir á náttúrufræðibraut skólans. MH er í Hlíðunum. Vísir/Sigurjón Talar fjögur tungumál Eins og fram kemur að ofan hefur Sóley búið í nokkrum löndum og hefur því þurft að læra mörg tungumál. Hún segist fyrstu ár lífs síns aðeins hafa talað íslensku við pabba sinn heima og svo í heimsóknum til Íslands á um tveggja ára fresti. Hún talar því reiprennandi japönsku og íslensku og í það eitt og hálft ár sem hún bjó í Þýskalandi tókst henni að bæta þýskunni alveg við. Auk þess talar hún ensku og talar því fjögur tungumál í heild. „Ég þurfti að læra þýsku frá grunni í Þýskalandi, það hefur aldrei verið mjög mikið vandamál fyrir mig að læra tungumál ef ég set mér tíma í að læra það.“ Spurð um uppáhaldsfögin er Sóley ekki lengi að svara og nefnir stærðfræði, eðlisfræði og sögu. Hún segir það ekki endilega hafa verið markmið að dúxa. „Mér finnst bara skemmtilegt að læra,“ segir Sóley en tilkynnt er um dúxinn á athöfninni sjálfri og því vissi hún ekki fyrr en við útskrift að hún hefði hreppt þann titil. „Ég vissi að það væri möguleiki og var ánægð þegar það var tilkynnt.“ Stefnir á ferðalög og meira nám Sóley fagnaði útskriftinni með fjölskyldunni á föstudaginn. Hún segist stefna á ferðalög í sumar og að halda áfram að vinna á hjúkrunarheimilinu sem hún hefur unnið á með skóla. Í haust stefnir hún svo á háskólanám. „Ég er ekki alveg 100 prósent viss, ég hef áhuga á mörgum mismunandi hlutum, en ég held ég ætli í rafmagnsverkfræði. Ég hef mestan áhuga á stærðfræði og eðlisfræði,“ segir hún og að hún sé því að skoða það fag í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. „Nú ætla ég bara að halda áfram að vinna og svo ætla ég til Þýskalands með kærastanum og hitta vini.“
Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Japan Þýskaland Reykjavík Tengdar fréttir Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Menntaskólinn í Reykjavík (MR) brautskráði í gær 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum. Var skólanum formlega slitið í 180. sinn við lok athafnarinnar. 30. maí 2026 23:02 Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift. 30. maí 2026 20:45 Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp. 25. maí 2026 15:24 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Sjá meira
Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Menntaskólinn í Reykjavík (MR) brautskráði í gær 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum. Var skólanum formlega slitið í 180. sinn við lok athafnarinnar. 30. maí 2026 23:02
Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift. 30. maí 2026 20:45
Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Metfjöldi útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands þetta árið og þurfti því að skipta nemendum í tvo hópa við athafnir sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gær. Alls settu 358 Verzlingar upp húfur sínar á laugardag og var fagnað í partíum um allt höfuðborgarsvæðið þar sem vinsælustu listamenn þjóðarinnar tróðu upp. 25. maí 2026 15:24