Viðskipti erlent

Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk er langauðugasti maður heims en hlutafjárútboð SpaceX gæti gert hann að fyrsta billjónamæringi heims, í dölum talið.
Elon Musk er langauðugasti maður heims en hlutafjárútboð SpaceX gæti gert hann að fyrsta billjónamæringi heims, í dölum talið. AP/Mark Schiefelbein

Forsvarsmenn geimferða- og tæknifyrirtækisins SpaceX ætla að verðleggja hvern hlut í félaginu, þegar hlutafjárútboð verður haldið, á 135 dali. Stefnt er að því að selja 555,6 milljónir hluta fyrir alls 75 milljarða dala. Það samsvarar um 9,3 billjónum króna.

Innra mat fyrirtækisins er að það sé verðmetið á um 1,75 billjónir dala (tólf núll), samkvæmt heimildum Reuters.

Hlutafjárútboðið gæti gert Elon Musk, stærsta eiganda SpaceX og auðugasta mann heims, að fyrsta billjónamæringi heimsins, í dölum talið. Það er að segja að hann gæti orðið fyrsti maður sögunnar til að vera metinn á meira en þúsund milljarða dala.

Sjá einnig: Ekki Tesla heldur SpaceX sem muni gera Musk að billjónamæringi

Musk er nú metinn á um 970 milljarða, samkvæmt greiningu Wall Street Journal. Mestur auður hans er bundinn í hlutabréfum og þar af er mest í SpaceX, eða um 538 milljarðar. Því næst á hann um 167 milljarða í Tesla, auk hlutabréfa og kaupréttar í öðrum félögum.

Musk er 54 ára gamall og stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki árið 1995. Á þessu 31 ári hefur hann því hagnast um 59.492 dali á hverri mínútu (7,4 milljónir króna á mínútu). Þetta samsvarar 3,6 milljónum á klukkustund eða 2,6 milljörðum dala á mánuði (322 milljörðum króna á mánuði).

Í grein Wall Street Journal segir að sé miðað við meðaltekjur bandarísks heimilis árið 2024 tæki það íbúa þess meira en ellefu milljón ár að afla auðæfa Musks.

Stærsta hlutafjárútboð í heimi

Hlutafjárútboðið, upp á 75 milljarða dala, yrði það langstærsta í heimi. Hingað til er hlutafjárútboð Aramco í Sádi-Arabíu það stærsta en það var upp á 29,4 milljarða.

Sú ákvörðun að festa verðið í hlutafjárútboði SpaceX í 135 dölum á hlut þykir óhefðbundin en iðulega tekur verðið mið af verðmati sérfræðinga og eftirspurn fjárfesta. Mikil eftirspurn getur hækkað verðið í aðdraganda útboðs.

Í samtali við Bloomberg segir greinandi að verðið þyki nokkuð hátt, sérstaklega með tilliti til þess að félagið skili ekki hagnaði. Hann segir að fjárfestar þurfi að binda vonir við framtíðarvöxt SpaceX og framtíðarhagnað.


Tengdar fréttir

Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað

Kröfum Elons Musk, auðugasta manns heims, á hendur Sam Altman og gervigreindarfélaginu OpenAI, sem Musk og Altman komu að því að stofna á sínum tíma, hefur verið hafnað. Níu kviðdómendur komust einróma að þeirri niðurstöðu eftir þriggja vikna réttarhöld og vitnisburði beggja auðjöfranna.

Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×