Viðskipti innlent

Hreyfing í við­ræðum Icelandair og flug­manna

Eiður Þór Árnason skrifar
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu flugstétta og Icelandair á sínu borði. Jón Þór Þorvaldsson til vinstri við Ástráð er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og jafnframt flugmaður hjá fyrirtækinu. Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair, til hægri á myndinni.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með deilu flugstétta og Icelandair á sínu borði. Jón Þór Þorvaldsson til vinstri við Ástráð er formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og jafnframt flugmaður hjá fyrirtækinu. Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair, til hægri á myndinni.

Hreyfing er í kjaraviðræðum fulltrúa Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) að sögn ríkissáttasemjara. Fundi þeirra lauk um 21:35 og hafði staðið frá klukkan 19:00.

„Það var farið yfir umfangsmiklar hugmyndir og tillögur um breytingar á kjarasamningi sem Icelandair hafði verið að vinna á undanförnum dögum. Það fór fram kynning á þessu og svona smá umræður en það hefur engin afstaða verið tekin til þessara tillagna enn þá,“ segir Ástráður Haraldsson í samtali við Vísi. 

FÍA muni kynna sér tillögurnar á næstu sólarhringum og bindur Ástráður vonir við að í kjölfarið muni félagið leggja fram tillögur eða gagntilboð. Ekki hefur enn verið boðað til næsta fundar í deilunni.

„Það er mín von að við séum allavega komin á ákveðna braut sem við gætum mögulega fetað einhvern veginn. En það er auðvitað alveg ómögulegt að segja um það enn þá, því það liggja ekki fyrir nein viðbrögð gagnaðilans.“

Hann segir Icelandair hafa lagt fram hugmynd að heildstæðari nálgun en áður hefur verið til umræðu fram að þessu.

„Ef hægt er að finna einhverja fleti sem að aðilarnir geta skipst á skoðunum um og eftir atvikum unnið áfram saman þá er það allavega svona skref í rétta átt. Það á svolítið eftir að koma í ljós.“

„Allavega þá held ég að öllum aðilum sé ljóst að það er auðvitað ekkert annað í boði heldur en að finna sameiginlega niðurstöðu.“

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×