Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar 12. júní 2026 07:47 Ástandið í innflytjenda- og hælisleitendamálum hér á Íslandi hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Sem lögmaður fylgist ég náið með þeim lagabreytingum sem gerðar hafa verið í þessum málaflokk m.a. til að bregðast við auknum fjölda umsókna um alþjóðlega vernd. Nýjustu lagabreytingarnar á þessu sviði hafa vakið sterk viðbrögð, sérstaklega áform um uppsetningu svokallaðra brottfararstöðva fyrir útlendinga sem bíða brottvísunar. Í opinberri umræðu hefur þessu úrræði oft verið lýst á neikvæðan hátt. Þegar málið er skoðað út frá lögfræðilegu og praktísku sjónarhorni er ljóst að verið er að gera of mikið úr þessu. Brottfararstöðvar eru hvorki óeðlilegar né ómannúðlegar, heldur nauðsynleg ráðstöfun. Við verðum að horfast í augu við raunveruleikann eins og hann blasir við. Ef ríkið hefur ekki yfir að ráða úrræðum fyrir einstaklinga sem lögregla þarf að hafa eftirlit með – til dæmis vegna óljóss bakgrunnsupplýsinga eða yfirvofandi brottvísunar – er um fáa kosti að ræða. Hingað til hafa þessir einstaklingar verið hnepptir í gæsluvarðhald og vistaðir í fangelsum landsins. Að vista fólk í fangelsum, sem ekki hefur framið neitt refsivert af sér, stríðir gegn grundvallarhugmyndum um mannúð og réttaröryggi. Almenn fangelsi eru ætluð afbrotamönnum, ekki umsækjendum eða hælisleitendum á grundvelli útlendingalaga. Sérstakt úrræði eins og brottvísunarstöðvar koma beinlínis í veg fyrir að fólk sé vistað í fangelsum landsins. Íslensk stjórnvöld eru ekki að búa til nýja stefnu úr lausu lofti. Þessi útfærsla er eðlilegt skref til að samræma okkar löggjöf við það sem þekkist best á Norðurlöndunum og innan Evrópusambandsins. Með lögunum er m.a. verið að klára innleiðingu á svokallaðri brottvísunartilskipun ESB. Með þessum breytingum er verið að tryggja að hægt sé að framfylgja lögmætum ákvörðunum Útlendingastofnunar og dómstóla, eftir atvikum, með skilvirkum hætti, í þeim tilvikum sem talin er þörf á. Fólk mun ennþá eiga kost á því að yfirgefa landið sjálft eða í samvinnu við yfirvöld. Brottfarastöðvar eru fyrst og fremst hugsaðar fyrir þá sem eru ósammvinnuþýðir, hafa brotið af sér eða hætta talin stafa af. Skilvirkni og mannúð þurfa að fara saman. Sérhæfð stöð tryggir líka að hægt sé að veita viðeigandi þjónustu, túlkaaðstoð og lögfræðilega ráðgjöf á einum stað. Það þjónar hagsmunum allra að ferlið sé gagnsætt og öruggt. Ég tel nauðsynlegt að við drögum úr tilfinningalegum upphrópunum þegar rætt er um innflytjendamál. Uppsetning á sérstökum búsetuúrræðum er lögfræðilega rökrétt viðbragð við flóknu úrlausnarefni. Valkosturinn að nýta fangelsi í staðinn eins og nú er gert eða missa alfarið stjórn á eftirliti er einfaldlega ekki boðlegt. Hér er verið að stíga eðlilegt og nauðsynlegt skref til að tryggja lög og reglu í íslensku samfélagi. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar