Uppgjörið: Sterk við­brögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikil­vægum sigri

Gunnar Berg Smárason skrifar
Natasha Moraa Anasi og félagar í Grindavík/Njarðvík eru að standa sig vel í Bestu deild kvenna í sumar.
Natasha Moraa Anasi og félagar í Grindavík/Njarðvík eru að standa sig vel í Bestu deild kvenna í sumar. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Grindavík/Njarðvík svaraði vel fyrir þungan skell í síðustu umferð og vann mikilvægan 2-0 útisigur gegn Fram á Lambhagavellinum í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í dag.

Gestirnir komu inn í leikinn eftir 0-5 tap gegn Breiðabliki fyrir landsleikjahléið en Fram hafði einnig tapað stórt, 6-2 gegn FH. Það var því ljóst að bæði lið ætluðu sér að sýna viðbrögð og ná í dýrmæt stig í baráttunni á neðri hluta deildarinnar.

Ellie Coffield kom Grindavík/Njarðvík yfir snemma leiks áður en Tinna Hrönn Einarsdóttir, sem kom óvænt snemma inn á vegna meiðsla, innsiglaði sigurinn með öðru marki gestanna í síðari hálfleik.

Gestirnir byrjuðu af krafti

Leikurinn fór fjörlega af stað og heimakonur byrjuðu af krafti. Ása Björg Einarsdóttir átti fyrstu marktilraun leiksins en Ashley Brown Orkus varði vel úr þröngri stöðu.

Það voru gestirnir sem náðu forystunni. Á fimmtu mínútu fékk Grindavík/Njarðvík hornspyrnu sem Rakel Sigurðardóttir tók. Hannah McLaughlin skallaði boltann áfram á Ellie Coffield sem var rétt staðsett og skoraði af stuttu færi.

Skömmu síðar varð Grindavík/Njarðvík fyrir áfalli þegar Danai Kaldaridou þurfti að yfirgefa völlinn meidd. Inn í hennar stað kom Tinna Hrönn Einarsdóttir og átti hún eftir að reynast gestunum afar mikilvæg.

Hildur Katrín Snorradóttir komst ítrekað í hættulegar stöður fyrir gestina en Ashley Brown Orkus hélt hins vegar liði sínu inni í leiknum með góðum vörslum og staðan var 0-1 í hálfleik.

Tinna Hrönn innsiglaði sigurinn

Þegar Fram virtist vera að vinna sig inn í leikinn sló Grindavík/Njarðvík aftur til. Á 64. mínútu endaði góð sókn með því að Maci Nicole Teater lagði boltann fyrir Tinnu Hrönn Einarsdóttur sem kláraði af öryggi og kom gestunum í 2-0.

Eftir það tókst Grindavík/Njarðvík að stjórna leiknum ágætlega og þrátt fyrir að Fram reyndi að minnka muninn náðu heimakonur ekki að finna leið fram hjá vörn gestanna. Niðurstaðan varð því sterkur og afar mikilvægur 0-2 sigur Grindavíkur/Njarðvíkur.

Atvik leiksins

Innkoma Tinnu Hrannar Einarsdóttur reyndist afdrifarík. Hún kom inn á strax á níundu mínútu eftir að Danai Kaldaridou þurfti að fara meidd af velli og skoraði síðan annað mark Grindavíkur/Njarðvíkur sem tryggði liðinu sigurinn.

Stjörnur og skúrkar

Tinna Hrönn Einarsdóttir var góð í dag. Hún kom óvænt inn á snemma leiks sem getur reynst erfitt en hún nýtti tækifærið sitt vel með öflugri frammistöðu sem kórónaðist með mikilvægu marki.

Ashley Brown Orkus markmaður Fram var mjög góð í dag þrátt fyrir að hafa fengið á sig tvö mörk og tapað leiknum, þá kom hún í veg fyrir að tapið hafi orðið stærra.

Dómgæslan

Ásmundur Þór Sveinsson stjórnaði leiknum með aðstoð þeirra Jovan Subic og Ásgeirs Sigurðssonar. Leikurinn var heilt yfir fremur þægilegur viðureignar og fá umdeild atvik komu upp. Dómarateymið leyfði leiknum að flæða ágætlega og hef ég ekkert slæmt um þeirra frammistöðu að segja.

Stemning og umgjörð

Aðstæður á Lambhagavellinum voru góðar, sólskin og smávægilegur vindur. Áhorfendur voru ekki margir en þeir sem mættu létu vel í sér heyra á köflum og sköpuðu ágæta stemningu í Úlfarsárdal. Umgjörðin var snyrtileg og leikurinn fór fram við fínar aðstæður.

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/NjarðvíkVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Gylfi Tryggvason: „Mjög ánægður með frammistöðuna í dag“

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var eðlilega sáttur eftir að lið hans vann mikilvægan 0-2 útisigur á Fram í áttundu umferð Bestu deildar kvenna. Sigurinn var sérstaklega sætur í ljósi þess að Grindavík/Njarðvík hafði tapað 5-0 fyrir Breiðabliki í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

„Takk fyrir það, fyrstu viðbrögðin eru bara gleði. Ég er mjög ánægður með frammistöðuna í dag,“ sagði Gylfi þegar hann var spurður út í fyrstu viðbrögð eftir leik.

Tinna Hrönn Einarsdóttir kom óvænt inn á snemma leiks eftir að Danai Kaldaridou þurfti að fara meidd af velli. Tinna nýtti tækifærið sitt vel og skoraði annað mark Grindavíkur/Njarðvíkur og var Gylfi þjálfari hennar skiljanlega mjög ánægður með hana.

„Hún var frábær. Það er ekkert grín að koma inn á svona snemma í leiknum. Við vonum bara að það sé í lagi með Danai, það er mikilvægast í þessu. Tinna kom inn á án þess að vera búin að hita almennilega upp þannig að auðvitað þurfti hún nokkrar mínútur til að komast inn í leikinn. Mér fannst hún síðan vinna sig mjög vel inn í hann, skora frábært mark og vera mjög ógnandi. Hún er mjög skemmtilegur leikmaður sem deildin hefur kannski ekki séð eins mikið af og hún ætti skilið og ég er mjög glaður að hún hafi spilað hér í dag og staðið sig vel.“

Grindavík/Njarðvík þurfti að standa af sér ágæta pressu hjá Fram í byrjun síðari hálfleiks en Gylfi var ánægður með hvernig hans lið brást við.

„Við héldum bara áfram að gera það sem við erum góðar í. Við lendum oft í því að lið breyti aðeins um taktík í hálfleik og þá þurfum við að finna út hvar styrkleikar og veikleikar mótherjans liggja. Við þurftum smá tíma í það en þegar við gerðum það fannst mér við leysa þetta vel.“

Aðspurður hvort hann væri ánægður með bæði frammistöðuna og úrslitin var svarið einfalt:

„Já, ég er mjög ánægður með bæði.“

Anton Ingi Rúnarsson: „Við áttum ekkert skilið úr þessum leik“

Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari FramVísir/Guðmundur Þórlaugarson

Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, var afar svekktur eftir 0-2 tap gegn Grindavík/Njarðvík á Lambhagavelli í dag. Hann taldi úrslitin fyllilega sanngjörn og sagði sitt lið einfaldlega ekki hafa mætt nægilega vel inn í leikinn.

„Ég er mjög svekktur, en þetta eru bara sanngjörn úrslit. Við áttum ekkert skilið úr þessum leik,“ sagði Anton eftir leik.

Að hans mati réðst leikurinn strax á fyrstu mínútunum.

„Hann tapaðist bara strax í byrjun. Það var andleysi og það vantaði baráttu hjá okkur. Við vorum undir alls staðar á vellinum og það er í raun ekkert flóknara en það.“

Fram virtist þó koma af meiri krafti inn í síðari hálfleikinn og skapaði sér nokkur góð færi áður en Grindavík/Njarðvík skoraði sitt annað mark.

„Það kom smá innspýting eftir hálfleikinn og við ætluðum að keyra aðeins á þetta. Það komu svona tíu mínútur þar sem við vorum kraftmiklar, en ekkert meira en það. Síðan, eins og ég segi, var þetta bara verðskuldaður sigur hjá Grindavík/Njarðvík og við áttum ekkert skilið úr þessu.“

Þegar Anton var spurður hvort hann gæti tekið eitthvað jákvætt út úr leiknum var svarið stutt og ákveðið:

„Nei, það er ekkert jákvætt.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira