Verður líkamleg og andleg barátta „Þetta leggst bara mjög vel í mig og alla leikmenn. Þetta er náttúrulega stærsta prófraunin til þessa. Þannig að vonandi erum við bara vel undirbúnar og hérna tilbúnar í þetta. Þetta er náttúrulega bara líkamleg og andleg barátta,“ segir Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur í Bónus-deild kvenna, en Íslandsmeistarar Njarðvíkur taka á móti Grindvíkingum í stórleik 6. umferðarinnar í kvöld. Sport 3.11.2026 14:31
Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll niður um jarðfall í Grindavík árið 2024, segir ákvörðunina um að hætta að leita að líkamsleifum Lúðvíks vonbrigði og að hún kalli á svör. Hann hafi sjálfur lagt til lausnir en þær hafi ekki verið teknar til greina. Hann, fyrir hönd fjölskyldunnar, muni beina erindi að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur. Innlent 2.11.2026 16:14
Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Aukin áhersla er lögð á eftirlit með jarðhræringum í kringum Grindavík vegna fólksfjölda í bænum. Næstum því helmingi meira af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi nú en fyrir síðustu eldgos. Innlent 31.10.2026 18:01
„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 27. október 2026 08:07
Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Innlent 26. október 2026 11:18
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst „Stundum sleppi ég því að segja að ég sé tvíburi, því þá þarf ég alltaf að segja alla söguna. Ég þarf að hugsa: Á ég að nefna þetta? Og ef ég geri það, á ég þá að láta eins og hann sé enn á lífi eða segja frá því að hann sé látinn? Stundum sleppi ég þessu bara. Það er skrítið, því ég er auðvitað enn tvíburi þótt hann sé látinn.“ Lífið 25. október 2026 09:00
„Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Emil Barja, þjálfari Stjörnunnar, segir að leikur liðsins hafi einfaldlega ekki verið nógu góður í kvöld er liðið mátti þola sex stiga tap gegn Grindavík í 3. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Körfubolti 22. október 2026 22:03
„Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ DeAndre Kane átti stórfínan leik fyrir Grindvíkinga er liðið vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í Bónus-deild karla í kvöld. Körfubolti 22. október 2026 21:37
„Þetta er bara einn leikur í einu“ Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur. Sport 21. október 2026 21:44
Stefna á að hefja leit í nóvember Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að í næsta mánuði verði mögulega hægt að hefja leit að jarðneskum leifum manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík árið 2024. Nú sé unnið að mótvægisaðgerðum. Innlent 20. október 2026 14:52
Kane lentur og má spila í kvöld DeAndre Kane leikmaður Grindavíkur lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun. Sport 19. október 2026 13:20
Kane brást illa við gríni Valsarans Cedrick Bowen, leikmaður Vals í Bónus deild karla í körfubolta, gerir stólpagrín að leit Grindvíkinga að DeAndre Kane í myndbandi sem hann birti á Instagram. Kane virðist ekki hafa tekið vel í myndbandið miðað við ummæli sem hann skrifaði við það. Körfubolti 17. október 2026 21:15
Bjarni Jó hættur Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. Íslenski boltinn 16. október 2026 09:32
„Tárin streymdu niður vangana á mér“ „Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“ Lífið 16. október 2026 09:09
Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Það er margt sem mig hefur langað að segja um lífið í Grindavík þessa dagana. Bæði við þá Grindvíkinga sem búa annars staðar og velta því kannski fyrir sér hvort þeir eigi að snúa aftur heim og við aðra Íslendinga sem fylgjast með því sem er að gerast hjá okkur. Skoðun 14. október 2026 13:15
Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. Innlent 30. september 2026 21:03
Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Þrír leikir fóru fram í fyrstu umferð Bónus deildar kvenna í kvöld. KR hóf tímabilið á sigri gegn Stjörnunni, í Síkinu lagði Tindastóll lið Keflavíkur og þá vann Grindavík stórsigur gegn Ármanni í Laugardalshöllinni. Körfubolti 29. september 2026 21:39
„Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Tilkynnt var um niðurstöður nýs endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík á þriðjudag. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir nýjan tón hafi verið í samtali við stjórnvöld síðustu vikur og að hlustað hafi verið á reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra. Innlent 24. september 2026 06:19
Grindavík var ekki svartur svanur Í umræðunni um eldgosin við Grindavík hefur því verið haldið fram að atburðarásin sé dæmi um svartan svan. Skoðun 23. september 2026 08:31
Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík á opnum fundi í Gjánni, í Grindavík í kvöld klukkan 20:00. Fundinum verður streymt í beinni hér á Vísi. Innlent 22. september 2026 19:00
Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Niðurstöður endurskoðaðs áhættumats fyrir Grindavík benda til þess að forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík séu ásættanlegar að því gefnu að skilgreindar öryggisforsendur séu uppfylltar og nauðsynlegar öryggisráðstafanir virkar. Ríkisstjórnin mun hefja vinnu við að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 22. september 2026 16:08
„Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Haukur Grønli slökkviliðsmaður hefur stofnað stuðningshóp fyrir fólk sem hefur lent í heilablóðfalli. Fyrsti fundurinn er á morgun. Sjálfur er Haukur að jafna sig eftir slíkt áfall í október 2024. Hann segir að eftir áfallið sé hann eins og Dóra í Nemó og að hann hafi upplifað mikla auðmýkt eftir veikindin. Innlent 7. september 2026 09:39
Hátt í áttatíu eftirskjálftar Tugir skjálfta hafa mælst í Brennisteinsfjöllum frá því að þriggja stiga skjálfti reið þar yfir í gærkvöldi. Innlent 5. september 2026 08:17
Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Jarðskjálfti varð við Brennisteinsfjöll klukkan 20:18 í kvöld og mældist hann 3,0 að stærð. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst og fannst skjálftinn í byggð. Innlent 4. september 2026 20:48