Margaret Kerry er látin Freyja Þórisdóttir skrifar 14. júní 2026 12:39 Margaret Kerry, fyrirmyndin að Disney-persónunni „Skellibjöllu“, á hátíðarhöldum í tilefni af 90 ára afmæli teiknimyndalistarinnar. Getty Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals.
Kerry fæddist sem Peggy Lynch í Springfield í Illinois árið 1929. Hún var ættleidd þriggja ára gömul af hjónum og flutti til Los Angeles. Fyrsta hlutverk hennar var sem álfur í kvikmyndinni Jónsmessunæturdraumur frá 1935 og hún kom fram í þremur stuttmyndum í Our Gang-seríunni, einnig þekkt sem The Little Rascals. Trúa á mátt „smá álfaryks“ Skjalasafn Walt Disney tilkynnti um andlát hennar á Instagram en Kerry lést þann 11. júní úr lungnakrabbameini í Wilmington, Norður-Karólínu, 97 ára að aldri. Eiginmaður hennar, Robert Boeke, lést tæpum þremur vikum fyrr, þann 24. maí, 100 ára að aldri en Kerry lætur eftir sig þrjú börn. Davis sagði Kerry að ofhugsa leikinn ekki heldur vera frekar sjálfri sér lík.Getty „Með eftirminnilegri leik sínum, tengslum sínum og tryggð við Disney-aðdáendur í gegnum árin hefur Margaret hjálpað til við að lýsa upp töfra þessara tímalausu persóna og veitt kynslóðum innblástur sem trúa á mátt trúar, trausts og „smá álfaryks“,“ segir í færslunni. Í andlátsfrétt bandaríska miðilsins People kemur fram að Kelly hafi útskrifast úr menntaskóla og síðan úr Los Angeles City College, en allan tímann starfaði hún við kvikmyndagerð. Þar er einnig skrifað um hvernig það kom til að Kerry féll hlutverk Skellibjöllu en hún var kölluð til þegar listamennirnir og framleiðendurnir voru að skipuleggja Pétur Pan. „Á þeim tíma var engin rafeindatækni. Allt var gert í höndunum,“ sagði hún og bætti við að „þeir réðu manneskju í hlutverkið og tóku hana svo upp á 35 millimetra filmu.“ Hún hafi verið tekin upp á meðan hún lék atriðin, í algjörri þögn, og svo hafi verið farið með upptökuna til teiknaranna. Kerry segist hafa spurt teiknarann, Marc Davis, hvað hann vildi sjá. „Ég sagði „hvernig viltu að hún sé? Utan við sig eins og Betty Boop? Yfir aðra hafin eins og drottning englanna?“,“ er haft eftir Kerry sem bætti við að Davis hafi ekki leyft henni að ofhugsa hlutverkið. „Margaret, við viljum að hún sé þú.“
Disney Bíó og sjónvarp Bandaríkin Andlát Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið HAM boða endalok alls Tónlist „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Sjá meira