Milla ætlar í formanninn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. júní 2026 07:03 Milla Ósk segir mikilvægt að félagið eigi í virku samtali við stjórnvöld. Milla Ósk Magnúsdóttir framleiðandi hjá ACT4 hyggst bjóða sig fram til formanns Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda. Hún segir aldrei hafa verið mikilvægara en nú fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað að eiga öflugan talsmann sem geti átt í góðu samtali við stjórnvöld. „
Ég vinn auðvitað í bransanum og ég brenn fyrir því að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur, bæði hér heima en líka utanlands, þar sem orðspor íslenskrar kvikmyndagerðarfólks fer mikinn,“ segir Milla Ósk í samtali við Vísi. Aðalfundur félagsins fer fram þann 18. júní og mun núverandi formaður Anton Máni Svansson ekki gefa kost á sér að nýju. Óhætt er að fullyrða að framboð Millu eigi sér nokkuð langan aðdraganda, enda Milla bæði unnið í bransanum og komið að honum á vettvangi stjórnmálanna. Hún hefur síðustu tvö ár starfað sem rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu ACT4 þar sem hún hefur framleitt sjónvarpsþáttaraðir á borð við Reykjavík Fusion og Bless Bless, Blesi, sem frumsýnd verður á RÚV á næsta ári. Auk þess er Milla meðeigandi að framleiðslufyrirtækinu Dokument Films þar sem hún vinnur að sjálfstæðri framleiðslu á tveimur heimildarþáttaröðum sem sýndar verða á RÚV á næstunni. Flestir landsmenn þekkja Millu svo líklega af skjánum hjá fréttastofu RÚV þar sem hún vann við framleiðslu og dagskrárgerð í tíu ár. Þá var Milla aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta-og menningarmálaráðherra þar sem hún fór fyrir menningar og fjölmiðlamálum og tók þátt í mótun kvikmyndastefnu Íslands til 2030 og undirbúning lagasetningar um hækkun endurgreiðslu vegna kvikmyndaframleiðslu úr 25 í 35 prósent. „Mér finnst mikilvægt að staðinn verði vörður um þann árangur sem við höfum náð í íslenskri kvikmyndagerð og að samtökin eigi áfram í virku samtali við stjórnvöld um endurgreiðslukerfið og við Kvikmyndasjóð, þar eru sem dæmi allskonar breytingar í bígerð sem mér finnst að bransinn verði að vera hluti af og eiga samtöl um. Þess vegna býð ég mig fram, því ég vil að það verði passað upp á þennan árangur.“ Fjallað hefur verið um erfiðar aðstæður í íslenskum kvikmyndabransa á þessu ári, aðeins er reiknað með tveimur íslenskum kvikmyndum í fullri lengd á þessu ári og færri erlendum verkefnum en áður. Því hefur verið lýst að óvissan í bransanum sé mikil um þessi misseri. Eru þetta ekki erfiðar aðstæður til að stíga inn í sem formaður? „Það er vissulega þannig að þetta er ekkert nýtt, þetta gefur verið heitur og kaldur bransi en aðalatriðið að mínu mati er að við tryggjum fyrirsjáanleika, þannig að kvikmyndafyrirtæki geti stillt seglin eins og vindar blása, þannig er hægt að sporna við einhverju frosti. Þetta er líka spurning um orðspor, að ef við erum örugg og traust í viðskiptum, stöndum okkur í rekstrarlegum forsendum, þá fréttist það út í alþjóðlegan bransa, því auðvitað viljum við að erlend fyrirtæki velji að koma hingað og fjárfesta í verkefnunum okkar og starfi með okkur.” Milla í tökum í Frakklandi með listamanninum Erró. Milla segir orðspor Íslands á erlendum vettvangi hingað til hafa verið gott. Íslenskt kvikmyndafólk sé fagfólk fram í fingurgóma og það beri af sér gott orð erlendis. „Þarna erum við ekki bara að tala um leikara heldur líka hljóðmenn, tökumenn, og alla á settinu sem sýna svo brjálæðislega mikla fagmennsku og það spyrst hratt út. Þess vegna snýst þetta líka um fyrirsjáanleika og öflugt samtal sem þarf að byggja upp, því þetta er bransi sem skilar gríðarlegum tekjum inn í ríkissjóð, langt umfram þessa endurgreiðslu og styrki. Ef við höldum rétt á spöðunum þá eigum við að geta boðið upp á stöðugt starfsumhverfi á Íslandi.“ Muntu rífa kjaft, láta reglulega í þér heyra á opinberum vettvangi, ef þú verður kjörin formaður? „Ég ætla nú ekki að segja að ég muni rífa kjaft, af því að mér finnst samtalið alltaf vænlegast til árangurs, ég mun miklu frekar leggja áherslu á að eiga mikið og gott, traust samtal við stjórnvöld, því það skiptir máli að við séum við borðið þegar ákvarðanir eru teknar og það finnst mér skipta öllu, frekar heldur en að básúnast yfir því í fjölmiðlum hvað allt er ömurlegt, þó maður muni auðvitað láta til sín taka,“ segir Milla hlæjandi.
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira