Viðskipti innlent

Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís

Lovísa Arnardóttir skrifar
Matvöruverð er almennt lægst í Prís.
Matvöruverð er almennt lægst í Prís. Vísir/Vilhelm

Verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu fimm til tíu prósent frá lægsta verði. Verð er enn ódýrast í Prís og um fimm til sex prósentum dýrara í Bónus og Krónunni. Þetta sýnir ný könnun Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði.

Verðmunur á einstökum vörum er víða mikill og í mörgum tilvikum fer hann yfir 30 prósent. Verðmunur er gjarnan minni í lágvöruverslunum eða oft á bilinu fimm til tíu prósent frá lægsta verði. Þetta sýnir ný könnun Verðlagseftirlits ASÍ á matvöruverði.

Í tilkynningu segir að niðurstöðurnar undirstriki að neytendur geti sparað umtalsverðar fjárhæðir með því að bera saman verð milli verslana. Samkvæmt úttektinni er ódýrasta verðið á matvöru að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan.

Þar kemur einnig fram að þegar verð voru borin saman á 289 vörum sem fengust í lágvöruverslunum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís, var lægsta verðið oftast að finna í Prís.

Verð 5,5 prósentum hærra en í Prís

Verslunin væri þannig með lægsta verð á fjölmörgum vörum í öllum helstu vöruflokkum, þar á meðal mjólkurvörum, brauðvörum, kjötvörum, drykkjarvörum og ýmsum þurrvörum. Að jafnaði var verð á vörum í Bónus um 5,5 prósentum hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum tilfellum var í Prís. Verð á vörum í Krónunni var að jafnaði sex prósentum hærra og Nettó um 11 prósentum hærra.

Samkvæmt tilkynningu er tæplega átta þúsund króna verðmunur á vörukörfunni í lágvöruverslunum. Vörukarfa með hundrað algengum neysluvörum var ódýrust í Prís þar sem hún kostaði 60.395 krónur samanborið við 68.127 kr. í Nettó þar sem vörukarfan var dýrust. Í Bónus kostaði sama karfa 64.373 kr. og í Krónunni 64.546 kr. Vörulistann má í heild sinni sjá hér.

Í tilkynningu er tekið fram að vöruúrval geti verið mjög breytilegt á milli verslana og einnig munur á stærð pakkninga. Af þeim vörum sem fáanlegar voru í öllum níu verslununum hafi verið algengt að verðmunur væri á bilinu 25 til 70 prósent. Mest hafi munað á verði á heimilisbrauði frá Myllunni sem var meira en tvöfalt dýrara í Krambúðinni heldur en í Prís.

Hæsta verðið í Krambúðinni

Þá er samkvæmt könnuninni mikill verðmunur á sérvörum og algengum neysluvörum sem finna má á flestum heimilum. Í flestum tilfellum hafi hæsta verðið verið að finna í Krambúðinni og þar á eftir í Hagkaupum. Listann má í heild sinni finna hér.

Á meðal dæma má nefna:

  • • MS léttmjólk, 1 lítri, kostaði frá 259 krónum í Prís upp í 369 krónur í Krambúðinni, sem jafngildir 42 prósenta verðmun.
  • Nýmjólk var á bilinu 259 til 369 krónur í Krambúðinni, einnig 42 prósenta munur.
  • KEA smáskyr var á bilinu 201 til 289 krónur eftir verslunum, eða 44 prósenta munur. Ódýrast var það í Prís en dýrast í Krambúðinni.
  • Heimilisjógúrt með jarðarberjabragði kostaði frá 492 krónum í Prís upp í 649 krónur í Krambúðinni, sem er 32 prósenta munur.
  • Góðostur í sneiðum kostaði á bilinu 1.105 til 1.399 krónur í Krambúðinni, eða 27 prósenta munur.
  • Kjarnafæði Lúxus Lambalæri kostaði frá 2.599 kr/kg í Prís upp í 4.779 kr/kg í Nettó, sem jafngildir 84 prósenta verðmun og rúmlega 2.100 króna mismun á kr/kg.
  • Ali brakandi lærakjöt var á bilinu 1.659 til 2.239 krónur, eða 35 prósenta munur. Þá kostuðu kjúklingabringur frá 2.110 kr/kg upp í 2.759 kr/kg eftir verslunum.
  • Rauð epli voru ódýrust í Prís á 399 kr/kg en þar á eftir fylgdi Krónan á 413 kr/kg og Bónus á 459 kr/kg.
  • Spergilkál kostaði frá 479 krónum upp í 749 krónur, sem er 56 prósenta munur. Lambhagasalat var á bilinu 459 til 799 krónur, eða 74 prósenta munur.
  • Verðmunur á sveppum og tómötum var minni, eða 13 og 12 prósent.

Í tilkynningu kemur fram að þótt munurinn á einstaka vörum virðist oft ekki mikill geti hann safnast hratt upp þegar keyptar eru margar vörur í einni innkaupaferð. Könnunin sýni að verðmunur á algengum dagvörum sé enn mikill og að sérstaklega geti borgað sig að fylgjast með verði á kjöti, mjólkurvörum og brauðvörum þar sem munurinn sé gjarnan mikill.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru dagana 8. til 14. júní í níu verslunum. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR. Nánar hér á vef ASÍ.


Tengdar fréttir

Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.

Verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum

Samkvæmt mælingum verðlagseftirlitsins í desember mælist verðlag lægst í Prís á átta algengum jólavörum sem voru skoðaðar. Mandarínum, laufabrauði, smjör og rjóma, til dæmis. Einnig var kannað verð á konfekti, gosi og fleiri vörum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×