Tilmæli til borgarstjórnar, fagþekking Eyjólfur Pálsson skrifar 23. júní 2026 11:00 Ég óska borgarstjórn velfarnaðar í hennar störfum. Hún er líkleg til að vinna vel. Mér þykja málefnaáherslur meirihlutans að langflestu leyti prýðilegar og þar er byggt á góðum grunni. Mikilvægt er að fagmennska sé í fyrirrúmi við stjórn borgarinnar en um leið er ekki hægt að gera kröfu um að borgarfulltrúar hafi vit á öllum sköpuðum hlutum. Því ætti borgarstjórn að leita til bestu sérfræðinga á hverju sviði. Það er trygging fyrir árangri. Lítum til stjórnenda í meðalstóru fyrirtæki. Ekki er hægt að ætlast til þess að þeir hafi þekkingu á öllu en þeir eiga að hafa sýn og vita hvað þeir vilja. Til að stefna þeirra komist í framkvæmd á sem farsælastan hátt margborgar sig fyrir þá að fá leiðbeiningar frá sérfræðingum sem búa yfir fagþekkingu. Eins er það í stjórnmálum, þar þarf fagþekkingu. Dýralæknar eru til dæmis ekki bestu fagmenn í fjármálaráðuneytinu. Núverandi ríkisstjórn bar gæfu til að velja faglegan fjármálaráðherra, Daða Má Kristófersson, sem vinnur vel og skynsamlega. Það má greina samhljóm milli hans og Bjarna Benediktssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, en báðir eru sammála um að íslenskt atvinnulíf sé komið í ójafnvægi. Þar deila þeir áhyggjum og ættu í sameiningu, með fagmennsku í farteskinu, að geta unnið, ásamt fagfólki, gegn þessari óheillaþróun. Hvort sem er í stjórnmálum, atvinnulífi eða annars staðar skilar það miklu að velja faglega hæfa einstaklinga. Á sínum tíma bað Davíð Oddsson mig um að taka sæti í stjórn Handverks og hönnunar. Ég var ekki Sjálfstæðismaður, hafði aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, en það skipti Davíð engu máli. Hann var að leita að fólki sem hafði vit á hönnun. Ég tók boðinu enda vissi ég að ég hefði verið valinn á faglegum forsendum. Ég veit ýmislegt um hönnun og einbeiti mér að henni. Minn rekstur byggir á ákveðinni sýn og ég hef haldið stíft í hana. Um leið hef ég nýtt mér þekkingu sérfræðinga á öllum mögulegum sviðum. Fjármál þykja mér ekki skemmtileg og ég veit ekki mikið um þau, en þau eru lífsnauðsynleg í rekstri. Ég hef leitað til sama fjármálaráðgjafa í yfir fjörutíu ár. Sú samvinna hefur verið einstaklega farsæl. Allt sem ég ætla að gera og kostar peninga hef ég borið undir hann og hann sagt já eða nei. Ef hann segir nei ígrunda ég málið betur og endurskoða hugmyndir mínar og legg svo málið fyrir hann að nýju. Stundum segir hann já og stundum nei. Þegar hann segir já leiðbeinir hann mér. Á fleiri sviðum hef ég nýtt mér fagmennsku sérfræðinga, eins og til dæmis þegar ég skrifa greinar í fjölmiðla eða held ræður. Þá hef ég oft fengið blaðamann til að aðstoða mig við að púsla saman texta. Ég þekki af eigin reynslu og atvinnurekstri hversu mikilvægt er að nýta sér aðstoð fagmanna. Við meirihluta borgarstjórnar segi ég: Nú hafið þið tækifæri til að leita til fagmanna á öllum sviðum. Nýtið það tækifæri því það mun verða til heilla fyrir borgarbúa og framtíðina. Höfundur er stofnandi Epal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyjólfur Pálsson Mest lesið Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson skrifar Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Sjá meira
Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun
Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar
Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson Skoðun