Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2026 11:13 Alls hafa sextán manns látið lífið í nautahlaupinu í Pamplona frá árinu 1924. AP Fyrsta nautahlaup hátíðarinnar San Fermin fór fram í spænsku borginni Pamplona í morgun. Fimm voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir nautunum.
Spænski ríkisfjölmiðillinn RTVE greinir frá því að fimm hafi þurft á læknisaðstoð að halda í morgun og að þrír hafi verið fluttir á sjúkrahús með áverka – einn Bandaríkjamaður og tveir Spánverjar. RTVE segir frá því að nautin hafi verið óvenjulega hröð í morgun og hlaupið leiðina, sem liggur um 850 metra um miðborg Pamplona, á tveimur mínútum og sextán sekúndum. Tíminn er tuttugu sekúndum hraðari en á síðasta ári. Mörg þúsund manns söfnuðust saman í miðborg Pamplona í morgun og fylgdust með nokkur hundruð manns hlaupa leiðina á undan nautunum. Nautahlaupið í Pamplona hefur um árabil sætt mikilli gagnrýni, bæði fyrir að vera hættulegt mönnum og fyrir að illa sé farið með nautin. Mörg nautin – sem eru á bilinu 570 og 610 kíló – slasast í nautahlaupinu og eru síðar drepin á nautaatssýningum. Nautahlaupið fer fram á hverjum morgni til loka hátíðarinnar 14. júlí. AP Alls hafa sextán manns látið lífið í nautahlaupinu í Pamplona frá árinu 1924. San Fermin-hátíðin á rætur að rekja aftur til sextándu aldar en þar er verið að heiðra verndardýrling Pamplona, Fermín. AP
Spánn Dýr Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira