Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 20:15 Alexia Putellas heilsar íslenska landsliðsfyrirliðanum Glódísi Perlu Viggósdóttur fyrir leik Spánar og Íslands í undankeppni HM 2027. Getty/Alex Nicodim Alexia Putellas, spænska knattspyrnukonan sem vann Gullknöttinn í tvígang sem leikmaður Barcelona, er búin að finna sér nýtt félag.
London City Lionesses hefur samið við Alexia Putellas til þriggja ára, en þetta eru án efa ein stærstu félagaskipti í sögu kvennaknattspyrnunnar.Putellas, sem er almennt talinn einn besti leikmaður sögunnar, yfirgaf Barcelona í maí eftir fjórtán ár hjá félaginu og vakti áhuga nánast allra stærstu félaga heims.Hin 32 ára gamla Putellas vann 38 titla með Barcelona, þar á meðal tíu deildarmeistaratitla.Leikmannakynningin fór ekki fram í Englandi heldur hinum megin við Atlantshafið. Putellas var kynnt til leiks í New York-borg ásamt Michele Kang, bandarískum milljarðamæringi og eiganda London City. View this post on Instagram A post shared by London City Lionesses (@londoncitylionesses) „Ég er himinlifandi með að hefja þennan nýja kafla með London City Lionesses,“ sagði Putellas.„Metnaður félagsins og staðföst skuldbinding þess við að vaxa sem sjálfstætt kvennalið höfðar mjög til mín. Ég hlakka til að láta til mín taka á vellinum þegar við keppum um titla,“ sagði Putellas.„Utan vallar, þar sem ég byggi á ástríðu minni fyrir uppbyggingu yngri flokka, er ég jafn spennt fyrir því að vinna með Michele að því að efla kvennaknattspyrnu á Englandi og á heimsvísu,“ sagði Putellas.Putellas var fyrirliði Barcelona þegar liðið vann sinn fjórða Meistaradeildartitil á síðasta tímabili hennar, á meðan London City endaði í sjötta sæti á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.„Alexia Putellas er holdgervingur hæfileika, alúðar og framtíðarsýnar í kvennaknattspyrnu. Ákvörðun hennar um að ganga til liðs við sjálfstætt félag okkar, sem setur konur í forgang, er kröftug staðfesting á því sem við erum að byggja upp,“ sagði Kang. View this post on Instagram A post shared by London City Lionesses (@londoncitylionesses) „Þetta er meira en bara samningur. Þetta er djarfleg yfirlýsing um framtíð íþróttarinnar,“ sagði Kang.Putellas skoraði 232 mörk í 507 leikjum fyrir Barcelona sem er met og hún er í öðru sæti yfir flesta leiki fyrir félagið.Hún vann heimsmeistaratitilinn með Spáni árið 2023 og var í liðinu sem tapaði fyrir Englandi í úrslitaleik Evrópumótsins 2025.Putellas gat ekki tekið þátt í Evrópumótinu 2022 vegna krossbandaslita sem hún varð fyrir rétt fyrir mótið og sneri aftur í lok næsta tímabils.Hún kemur á frjálsri sölu, eftir að hafa látið samning sinn við Barcelona renna út, og er talin vera launahæsti leikmaður London City.
Enski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira