Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. júlí 2026 10:03 Leikarinn Josh Grisetti lék við góðan orðstír á sviði og í þónokkrum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Leikarinn Josh Grisetti, sem er best þekktur fyrir leik sinn í gamandramaþáttunum The Marvelous Mrs. Maisel, er látinn, aðeins 44 ára að aldri. Rob McClure, Broadway-leikari og náinn vinur Grisetti, greindi frá því í gær að Grisetti hefði stytt sér aldur föstudaginn 10. júlí síðastliðinn. „Með mölbrotið hjarta greini ég frá því að hinn snjalli Josh Grisetti stytti sér aldur á föstudaginn. Ég er ekki einu sinni tilbúinn til að reyna að skilja,“ skrifaði McClure í tilkynningu um andlátið. „Hjarta mitt er hjá eiginkonu hans og fjölskyldu meðan þau reyna að eiga við þennan nýja raunveruleika,“ skrifaði hann. View this post on Instagram A post shared by Rob McClure (@mcclurerob) Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Leikari og kennari Grisetti fæddist 1. desember 1981 í Washington og ólst upp í Virginíu. Hann lærði söngleik við Boston Conservatory og aflaði sér síðan MFA-gráðu í leiklistarkennslu frá Loyola Marymount-háskóla. Stærstan hluta ferils síns starfaði Grisetti á sviði, bæði á Boadway og í minni verkum, en var einnig yfir söngleikjadeildinni í CSU í Kaliforníu. Grisetti lék Ralph Emerson í Marvelous Mrs Maisel. Fyrir utan það lék Grisetti í þónokkrum kvikmyndum, svosem The Namesake (2006), Men in Black 3 (2012) og The Immigrant (2013), og sjónvarpsþáttum á borð við Nurse Jackie (2012), The Good Fight (2021) og The Marvelous Mrs Maisel (2023). Yfirleitt voru þetta smáhlutverk nema í síðastnefndu þáttunum þar sem hann var í burðarhlutverki sem Ralph Emerson í lokaseríu þáttanna. Fjöldi leikara hefur minnst Grisetti svo sem leikkonurnar Rachel Zegler og Ariana DeBose. Andlát Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira
Rob McClure, Broadway-leikari og náinn vinur Grisetti, greindi frá því í gær að Grisetti hefði stytt sér aldur föstudaginn 10. júlí síðastliðinn. „Með mölbrotið hjarta greini ég frá því að hinn snjalli Josh Grisetti stytti sér aldur á föstudaginn. Ég er ekki einu sinni tilbúinn til að reyna að skilja,“ skrifaði McClure í tilkynningu um andlátið. „Hjarta mitt er hjá eiginkonu hans og fjölskyldu meðan þau reyna að eiga við þennan nýja raunveruleika,“ skrifaði hann. View this post on Instagram A post shared by Rob McClure (@mcclurerob) Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Leikari og kennari Grisetti fæddist 1. desember 1981 í Washington og ólst upp í Virginíu. Hann lærði söngleik við Boston Conservatory og aflaði sér síðan MFA-gráðu í leiklistarkennslu frá Loyola Marymount-háskóla. Stærstan hluta ferils síns starfaði Grisetti á sviði, bæði á Boadway og í minni verkum, en var einnig yfir söngleikjadeildinni í CSU í Kaliforníu. Grisetti lék Ralph Emerson í Marvelous Mrs Maisel. Fyrir utan það lék Grisetti í þónokkrum kvikmyndum, svosem The Namesake (2006), Men in Black 3 (2012) og The Immigrant (2013), og sjónvarpsþáttum á borð við Nurse Jackie (2012), The Good Fight (2021) og The Marvelous Mrs Maisel (2023). Yfirleitt voru þetta smáhlutverk nema í síðastnefndu þáttunum þar sem hann var í burðarhlutverki sem Ralph Emerson í lokaseríu þáttanna. Fjöldi leikara hefur minnst Grisetti svo sem leikkonurnar Rachel Zegler og Ariana DeBose.
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Andlát Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira