Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar 22. júlí 2026 08:33 Íslenskir búfjárstofnar hafa að mestu búið við einangrun frá erlendu búfé um aldir. Fáein dæmi eru um innflutning, einkum sauðfjár til kynbóta, en þær tilraunir hafa jafnan endað með því að sjúkdómar bárust hingað samhliða og ollu skelfilegum búsifjum hjá fátækri þjóð sem átti lífsafkomu sína að miklu leyti undir afurðum búfjár og sjósókn. Reynslan mótaði íslenska löggjöf Í ljósi þeirra afdrifaríku mistaka sem hafa orðið við innflutning lifandi búfjár hefur hér á landi verið byggt upp heildstætt kerfi til verndar dýraheilbrigði. Hér er ekki aðeins átt við bann við innflutningi lifandi dýra heldur við heildstætt kerfi þar sem mörg stjórntæki vinna saman að því markmiði að koma í veg fyrir að hingað berist og breiðist út sjúkdómar sem íslenskt búfé hefur litla eða enga mótstöðu gegn eða krefjast kostnaðarsamra aðgerða, svo sem bólusetninga eða niðurskurðar, til að halda þeim í skefjum. Þetta heildstæða kerfi byggist á samspili margra ólíkra stjórntækja. Þar má nefna reglur um bann við innflutningi lifandi búfjár, strangar reglur um innflutning erfðaefnis og kröfur um sótthreinsun búnaðar sem tengist dýrahaldi, svo sem notaðra reiðtygja, innréttinga í gripahúsum, landbúnaðartækja, lífræns áburðar sem inniheldur mykju og annarra vara sem geta borið smit. Auk þess gegna eftirlit á landamærum, skráning og rekjanleiki, vöktun smitsjúkdóma, rannsóknastarfsemi, sóttvarnaaðgerðir, viðbragðsáætlanir og lagalegar heimildir stjórnvalda til að grípa til nauðsynlegra ráðstafana mikilvægu hlutverki. Ekkert þessara stjórntækja var hannað til að standa eitt og sér. Hvert þeirra byggist á því að hin séu einnig til staðar og virki með þeim. Vernd sem byggir á samspili margra þátta Markmið þessa fyrirkomulags í heild sinni er að halda áhættunni af því að sjúkdómar berist í búfé eins lítilli og unnt er. Þetta á ekki aðeins við um þekkta og skráða alvarlega búfjársjúkdóma, eins og dæmin sýna glögglega. Þegar svonefnd „hestapest“ barst til landsins árið 2010 kom í ljós að jafnvel lítt þekkt eða áður óþekkt smitefni, sem ekkert ónæmi hefur byggst upp gagnvart, geta valdið gríðarlegum usla. Þetta var þannig harkaleg áminning um að sú sérstaða sem hér hefur byggst upp er vandmeðfarin og verður ekki varðveitt fyrirhafnarlaust. Vernd búfjár gegn smitsjúkdómum er þannig jafnframt dýravelferðarmál. Innri markaðurinn byggir á öðrum forsendum Innri markaður Evrópusambandsins byggir á annarri grunnforsendu. Frjálst flæði vara er ein af hornsteinum samstarfsins. Sameiginlegt regluverk á að tryggja að vörur geti almennt farið óhindrað milli aðildarríkja og að þjóðlegar takmarkanir verði aðeins réttlættar við afmörkuð og lögbundin skilyrði. Í reglum innri markaðarins teljast lifandi dýr til vöru og lúta því meginreglum um frjálst vöruflæði. Allar takmarkanir á frjálsu flæði þeirra kalla því á ríka sönnunarbyrði um nauðsyn slíks inngrips. Markmiðið er að skapa eitt samræmt markaðssvæði þar sem aðildarríkin starfa eftir sameiginlegum leikreglum og reglur um matvælaöryggi og dýraheilbrigði eiga að tryggja að allir sitji við sama borð þegar kemur að frjálsu vöruflæði. Spurningin er því ekki hvort unnt sé að verja einstakar reglur íslenska kerfisins. Spurningin er hvort unnt sé að viðhalda því heildstæða kerfi sem byggt hefur verið upp innan regluverks sem byggir á öðrum grunnforsendum. Þeirri spurningu verður ekki svarað með því einu að benda á að Evrópusambandið hafi sameiginlegar reglur um dýraheilbrigði eða matvælaöryggi. Álitaefnið snýst um hvort Ísland geti áfram byggt vernd sína á þeirri kerfishugsun sem mótað hefur íslenska löggjöf um áratugaskeið. Reglur innri markaðarins rekast á íslenskan veruleika. Þetta íslenska fyrirkomulag til verndar dýraheilbrigði rekst augljóslega á þá meginreglu innri markaðarins að vörur skuli vera í frjálsu flæði. Jafnvel gömlu sauðfjárveikivarnarlínurnar, sem enn gegna mikilvægu hlutverki við að verja heilbrigði búfjár og stýra flutningi á heyi og lifandi dýrum, einkum sauðfjár og geita, milli landshluta. Þær ganga engu að síður í berhögg við þessar grundvallarreglur innri markaðarins. Bann við innflutningi á lifandi búfé er vissulega mikilvægur hluti þessa fyrirkomulags, en tengsl þess við önnur úrræði sem þjóna sama markmiði eru órjúfanleg. Eðlilegt er að stjórnvöld, sem nú hyggjast sækja umboð til að hefja á ný viðræður um aðild að Evrópusambandinu – hér er það orðað meðvitað þannig þar sem fyrir liggur að það verður ekki gert á öðrum grunni en fyrirvaralausri umsókn um aðild frá 16. júlí 2009 – geri grein fyrir því hvaða markmið þau setja sér um vernd dýraheilbrigðis og hvernig þau hyggjast ná þeim. Jafnframt þurfa þau að skýra hvernig þau telja unnt að samræma þau markmið þeirri meginreglu Evrópusambandsins að vörur skuli vera í frjálsu flæði. Höfundur er hagfræðingur með áratuga reynslu af störfum fyrir íslenskan landbúnað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Erna Bjarnadóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun