Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. júlí 2026 12:14 Johnny Depp birtist aftur á skjánum í vetur sem Ebeneser Skröggur. Johnny Depp mun leika nánösina Ebeneser Skrögg í Ebenezeri, nýrri aðlögun á Christmas Carol eftir Charles Dickens, sem verður frumsýnd næstkomandi nóvember. Depp hefur verið fjarverandi Hollywood síðan Amber Heard, fyrrverandi eiginkona hans, sakaði hann um heimilisofbeldi árið 2018 og þau tókust í kjölfarið á fyrir dómstólum.
Kvikmyndaverið Paramount Pictures birti í gær fyrstu stikluna fyrir jólamyndina Ebenezer í leikstjórn Ti West. Myndinni er lýst sem myrkri aðlögun á hinum sígilda Jóladraumi Charles Dickens þar sem Ebeneser Skröggur er ásóttur af draugum fortíðar, nútíðar og framtíðar yfir jólahátíðina. Depp fer með aðalhlutverk Ebenesers en utan hans hljómar leikhópurinn svo: Rupert Grint sem Bob Cratchit, Daisy Ridley sem Emily Cratchit, Andrea Riseborough sem draugur fortíðar, Tramell Tillman sem draugur nútíðar og Ian McKellen sem Jacob Marley. Í stiklunni má sjá draugana hrella Skrögg og samskipti hans við samborgara sína sem einkennast af fýlu, nísku og almennum leiðindum. „Það er gott að vera kominn aftur,“ segir Skröggur svo í lok stiklunnar og má segja að sé um leið opinber yfirlýsing leikarans. Ebenezer er fyrsta Hollywood-myndin sem Depp leikur í síðan hann átti í löngum og ljótum opinberum deilum við Amber Heard fyrir dómstólum frá 2018 til 2022 þar sem þau sökuðu hvort annað um heimilisofbeldi. Depp var í kjölfarið sparkað úr myndinni Fantastic Beats: The Secrets of Dumbledore (2022) og fékk Mads Mikkelsen hlutverk illmennisins Grindelwald í staðinn. Depp hefur síðan leikið í alþjóðlegum myndunum Minamata (2020) og Jeanne du Barry (2023) og leikstýrði hann Modì, Three Days on the Wing of Madness (2024). Hollywood virðist þó hafa fyrirgefið leikaranum því auk þess að leika Ebeneser Skrögg var hann ráðinn í hasartryllinn Day Drinker með Madelyn Cline og Penélope Cruz. Þá hefur framleiðandinn Jerry Bruckheimer lýst því yfir að hann vilji sjá Depp aftur í hlutverki sjóræningjans Jacks Sparrow.
Bíó og sjónvarp Hollywood Jól Deilur Johnny Depp og Amber Heard Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Fleiri fréttir Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira