Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Árni Sæberg skrifar 27. júlí 2026 11:32 Börn að leik utan við Bandar Abbas, sem liggur við hið mikilvæga Hormússund. AP Photo/Amirhosein Khorgooi Verð á Brent-hráolíu hefur fallið um níu prósent það sem af er degi eftir að hafa einnig lækkað í gær. Verðið stendur nú í 88 Bandaríkjadölum eftir að hafa rofið 100 dala múrinn fyrir helgi. Ástæða lækkunarinnar er sú að Bandaríkin og Íran hafa gert hlé á átökum sínum og flutningaskip geta því siglt um Hormússund.
Líkt og greint hefur verið frá mun Íran gera hlé á árásum svo lengi sem Bandaríkin gera slíkt hið sama. Þetta hefur Reuters eftir háttsettum írönskum embættismanni en Bandaríkin gerðu hlé á sprengjuárásum sínum eftir að ráðgjafar Donalds Trump forseta tjáðu honum að listi skotmarka færi þverrandi og þeir hefðu áhyggjur af stöðu vopnabúrs Bandaríkjanna. Ekki var greint frá neinum árásum um helgina en hléið kemur í kjölfar þrettán daga árásarhrinu sem virtist færast í aukana. Íran svaraði árásum Bandaríkjanna með eigin árásum á nágrannalönd sín sem hýsa bandarískar herstöðvar. Tunnuverðið á Brent-hráolíu hækkaði mjög hratt þegar stríð hófst milli Bandaríkjanna og Írans í lok febrúar en það er gjarnan notað sem viðmið fyrir olíuverð á heimsvísu. Þegar samið var um vopnahlé tók verðið að lækka rólega um tíma en tók svo aftur stökk upp á við þegar stríðið hófst á ný í byrjun júlímánaðar. Á fimmtudag náði það hundrað bandaríkjadölum á tunnu og er það í fyrsta sinn frá því í maí. Olíuverð hefur lækkað um helgina og lækkunin hefur haldið áfram það sem af er degi. Nú stendur verðið í 88 dölum.
Bensín og olía Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Verðlag Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira