Körfubolti

Sakar leik­mann um að halda fram­hjá sér með mörgum leik­mönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DiJonai Carrington ásakaði fyrrverandi kærustu sína um ítrekað framhjáhald.
DiJonai Carrington ásakaði fyrrverandi kærustu sína um ítrekað framhjáhald. @dijonai

Leikmaður í WNBA-deildinni í körfubolta hefur sakað annan leikmann um að halda framhjá sér með að minnsta kosti tveimur öðrum leikmönnum. Það er óhætt að segja að þessi ásökun hafi vakið mikla athygli ekki síst þar sem viðkomandi nafngreindi leikmennina.

Allt byrjaði þetta með samfélagsmiðlafærslu körfuboltakonunnar DiJonai Carrington, sem spilar með Chicago Sky. Hún ásakaði þar fyrrum kærustu sína, NaLyssu Smith hjá Las Vegas Aces, um að halda framhjá sér.

Þær hættu saman á síðasta ári og Carrington segir ástæðuna hafa verið að Smith hélt framhjá með að minnsta kosti tveimur leikmönnum.

Carrington skrifaði: „Þar sem fólk vill vera fyndið í dag ætla ég að vera bráðfyndin!“ áður en hún bætti við: „Já, Nalyssa hélt framhjá mér með þeim Deja Kelly og Aaliyah Nye+++ og mörgum fleirum,“ skrifaði Carrington.

Færslan fór sem eldur í sinu um netheima og vakti strax athygli þar sem Carrington nafngreindi þær Deja Kelly og Aaliyah Nye. Carrington og Smith byrjuðu saman árið 2020 þegar þær voru liðsfélagar í Baylor-háskóla. Carrington hafði áður lýst sambandsslitum þeirra með þessum orðum:

„Okkur semur vel en við erum ekki lengur saman,“ og útskýrði: „Þetta var á góðum nótum – við þroskuðumst bara í ólíkar áttir,“ sem gerir þessar nýju ásakanir að algjörri kúvendingu frá fyrri yfirlýsingu hennar.

Smith brást við ásökununum í beinu streymi þar sem hún spurði hvers vegna Carrington væri að koma með þessar ásakanir núna ári eftir sambandsslit þeirra. „Hvort sem það var hún sem hélt framhjá mér eða ég hélt framhjá henni þá kemur það engum við,“ sagði Smith.

Hvorki Kelly né Nye hafa gefið út opinbera yfirlýsingu vegna ásakananna.

Ásakanirnar ollu gríðarlegum umræðum á samfélagsmiðlum og skiptu aðdáendum í tvo hópa: þá sem studdu rétt Carrington til að tjá sig og þá sem gagnrýndu að svona einkamál væru meðhöndluð opinberlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×