Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2026 11:06 Enzo Maresca stýrði Manchester City í fyrsta sinn í gær. epa/WUN SUEN Enzo Maresca, nýr knattspyrnustjóri Manchester City, er fullkominn fyrir félagið. Þetta segir króatíski varnarmaðurinn Josko Gvardiol.
Maresca tók við City í sumar eftir að Pep Guardiola lét gott heita eftir tíu ár við stjórnvölinn hjá félaginu. City var gríðarlega sigursælt undir stjórn Guardiolas og Maresca fær það erfiða verkefni að fylgja þessum góða árangri eftir. En Gvardiol hefur mikla trú á nýja stjóranum. „Þetta er hátt getustig og það er ástæða fyrir því að hann var valinn sem stjóri. Hann er góður, með nokkrar nýjar hugmyndir og við verðum að sjá hvað hann gerir með leikstílinn og taktíkina,“ sagði Gvardiol eftir leikinn gegn Inter í Hong Kong í gær. „Ég held að hann sé fullkominn kostur en að sjálfsögðu tekur þetta tíma. Þetta er algjörlega nýtt og það er ekki auðvelt að skipta um stjóra. Okkar verkefni er að hjálpa honum eins mikið og við getum, hlusta og aðlagast eins fljótt og kostur er. Ég hitti hann, við ræddum um meiðslin mín og líka hvernig við spiluðum, hvernig ég spilaði áður hjá Pep og það var þannig.“ City og Inter skildu jöfn, 1-1, en ítölsku meistararnir unnu í vítaspyrnukeppni, 1-3. Divin Mubama skoraði mark City í leiknum. Næsti leikur City er gegn úrvalsliði suður-kóresku úrvalsdeildarinnar á miðvikudaginn.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira