Ben Jones er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. ágúst 2026 12:11 Ben Jones, lengst til hægri, ásamt meðleikurum sínum John Schneider og Tom Wopat úr Dukes Of Hazzard. Getty Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.
Eiginkona Jones til 33 ára, Alma Viator, greindi frá tíðindunum í Facebook-færslu í gær. „Í dag missti ég ástina í lífi mínu,“ skrifaði Viator í færslunni og greindi frá því að Jones hefði fengið hjartaslag í sínum eftirlætis hægindastól heima hjá sér meðan hann beið eftir því að hafnaboltaleikur Atlanta Braves og New York Yankess byrjaði í sjónvarpinu. „Ben lifði undraverðu og bráðskemmtilegu lífi. Hann elskaði og var elskaður af svo mörgum. Hans verður saknað. Ég elskaði hann svo svo mikið,“ skrifaði Viator í færslunni. Jones með hundi sínum í hægindastólnum. Jones fæddist í Edcecombe-sýslu í Norður-Karólínu 30. ágúst 1941 inn í mikla fjölskyldu lestarstarstarfsmanna og byrjaði ungur að vinna á lestarteinunum. Hann hóf nám við Háskólann í Norður-Karólínu árið 1961, kynntist þar leiklistinni og var fljótlega farinn að vinna sem leikari. Jones var einnig virkur í réttindabaráttu svartra á sjöunda áratugnum, var handtekinn af lögreglu fyrir þáttöku mótmælum og var tvívegis fyrir barðinu á árásum hvítra öfgamanna í Ku Klux Klan. Frumraun Jones á stóra skjánum var í blaxploitation-myndinni Together for Days (1972) og lék hann eftir það í þó nokkrum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Jones var hvað afkastamestur á áttunda áratugnum og undir loks hans fékk hann hlutverk bifvélavirkjans Cooter Davenport í gamanþáttunum Dukes of Hazzard. Þættirnir voru afar vinsælir og voru á dagskrá í sjö þáttaraðir frá 1979 til 1985. Þegar tók að líða á seinni hluta leiklistarferilsins skipti hann um starfsvettvang og fór út í stjórnmál. Jones var kjörinn þingmaður Demókrata fyrir Georgíu-ríki í fulltrúadeild Bandaríkjaþings árið 1988 og sat í embætti frá ársbyrjun 1989 til ársbyrjunar 1993. Jones var árið 1989 spurður hvernig þessi tvo störf hans spiluðu saman og sagði þá: „Fólk spyr mig í Washington hvort ég sé eitthvað að leika meira. Og ég geri það meira en nokkru sinni fyrr.“ „Færnin sem ég lærði á sviði og í kvikmyndum er ómetanleg í stjórnmálum, því við erum að tala um samskipti og það að vera öruggur fyrir framan myndavélina, fyrir framan áhorfendur og að finna þessi tengsl, þessa kemistríu og fyllast orku yfir því,“ sagði hann. Jones sóttist í tvígang eftir kjöri, árið 1994 og 2002, en hafði ekki erindi sem erfiði en var þrátt fyrir það áfram virkur talsmaður Demókrataflokksins. Jones lætur eftir sig eiginkonuna Ölmu og tvö börn, Rachel og Walker.
Bíó og sjónvarp Hollywood Andlát Bandaríkin Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Sjá meira