Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 16:31 Þegar myrkrið skall skyndilega á þann 12. ágúst, eins og slökkt hafði verið á ljósrofa, hugsaði ég óumflýjanlega til þess að undirbúningur okkar fyrir þessar tvær mínútur hófst fyrir rúmlega tveimur árum. Þá vissum við í Vesturbyggð sáralítið hvað við vorum að undirbúa okkur fyrir. Við vissum dagsetninguna, að Vesturbyggð yrði á almyrkvaslóð og að Látrabjarg yrði besti staður í heiminum til að upplifa myrkvann á landi. Við vissum þó ekki hversu margir myndu koma, hvernig fólk myndi ferðast um svæðið, hvar það myndi gista eða hversu mikið álag yrði á vegi, tjaldsvæði og aðra innviði. Smám saman tók verkefnið á sig skýrari mynd. Fleiri aðilar komu að borðinu, sviðsmyndir voru unnar, viðbúnaður aukinn og áætlanir urðu markvissari. Heildarmyndin varð þó ekki fyllilega ljós fyrr en vikan sjálf rann upp. Veðurspáin leit vel út, fólk tók að streyma inn á svæðið og þá fyrst fórum við að sjá nokkurn veginn hvað við værum að takast á við. Veðrið í aðdraganda myrkvans var upp á sitt allra besta og gestir okkar fengu að njóta Vesturbyggðar með okkur eins og hún gerist fegurst. Glampandi sól, spegilsléttir firðir og einstök náttúrufegurð. Tjaldsvæðin fylltust, þorpin iðuðu af lífi og eftirvænting lá í loftinu. Ferðaþjónar og aðrir rekstraraðilar höfðu undirbúið sig vel, starfsfólk tjaldsvæða stóð vaktina og íbúar tóku á móti straumnum af þeirri gestrisni sem einkennir samfélagið okkar. Það var einstaklega gleðilegt hversu vel allt gekk og hve ánægðir gestir okkar voru með móttökurnar. Verkefni af þessari stærðargráðu verður ekki leyst af litlu sveitarfélagi einu og sér. Þegar nær dró atburðinum komu stjórnvöld inn í það af miklum krafti. Hlustað var á ákall um aukinn viðbúnað, samhæfingu og fjármagn til að geta tekið á móti þeim fjölda sem stefndi á svæðið. Samstarfið við ríkið og stofnanir þess á lokametrunum var bæði mikilvægt og árangursríkt. Ég vil sérstaklega að nefna Vegagerðina sem á sannarlega hrós skilið. Í aðdraganda almyrkvans var allt kapp lagt á að hefla vegi svæðisins, suma oftar en einu sinni, og koma þeim í eins gott ástand og mögulegt var. Þessi vinna skipti verulegu máli til að tryggja öryggi þessa þúsunda gesta og að umferð gengi eins og best yrði á kosið. Það er ekki á hverjum degi sem bæjarstjóri Vesturbyggðar notar tækifærið til að hrósa Vegagerðinni, við erum jú oftar í því hlutverki að minna á það sem betur mætti fara í vegamálunum okkar, en það er ekki síður mikilvægt að hrósa þegar vel er gert. Látrabjarg var sá staður á landi þar sem almyrkvinn stóð lengst og því var ljóst frá upphafi að mikill áhugi yrði á svæðinu. Aðstæður þar eru þó krefjandi, enda vegasamgöngur þangað ekki einfaldar og bílastæði takmörkuð við um 150 bíla. Fjöldi fólks kaus því að skilja bílinn eftir í Breiðavík og ganga þaðan um 13 kílómetra leið út á Bjargtanga. Aðstæður þar kölluðu því á töluverðan undirbúning og gott samstarf þeirra aðila sem komu að skipulagningu á svæðinu. Náttúruverndarstofnun, sem hefur umsjón með friðlandinu Látrabjargi, vann vel að því að bæta innviði og aðstöðu á svæðinu fyrir aukinn gestafjölda. Vegagerðin og lögreglan skipulögðu umferðarstýringu á svæðinu sem var sinnt ásamt björgunarsveitum af mikilli fagmennsku. Það var einstaklega ánægjulegt að eftir alla óvissuna, síbreytilegar veðurspár og mikinn undirbúning fengu þau sem lögðu þessa leið á sig að upplifa almyrkvann í allri sinni dýrð. Þar sá náttúran sjálf um lokaatriðið og gaf gestunum upplifun sem þeir munu seint gleyma. Það gladdi mig ótrúlega mikið. Ég vil færa þjónustuaðilum, starfsfólki tjaldsvæða, starfsmönnum sveitarfélagsins, lögreglu, björgunarsveitum, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Rauða krossinum, slökkviliði, Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni, landeigendum og öllum öðrum sem komu að undirbúningi og framkvæmd innilegar þakkir. Sérstakar þakkir fá þau Valgerður María menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar og Sölvi hjá markaðsstofu Vestfjarða sem hafa verið lykilaðilar í öllu samtali og undirbúningi. Jafnframt vil ég þakka stjórnvöldum og stofnunum ríkisins fyrir að hlusta á ákallið og koma af krafti inn í verkefnið þegar mest lá við. Það er einn maður sem ekki verður hjá komist að nefna þegar horft er til baka á aðdraganda almyrkvans, Sævar Helga Bragason. Stjörnu-Sævar var óþreytandi við að vekja athygli á þessum einstaka atburði og miðla fróðleik um hann til almennings. Hann hélt okkur sveitarfélögunum og stjórnvöldum vel á tánum og var ófeiminn við að hnippa í okkur þegar honum fannst undirbúningurinn ekki ganga nógu hratt eða vera ábótavant. Sævar á jafnframt stóran þátt í þeim mikla áhuga sem almyrkvinn vakti meðal íslensks almennings. Eldmóðurinn og einstök hæfni hans til að gera stjörnufræðina aðgengilega og spennandi byggði upp eftirvæntingu eftir þessum degi langt fram í tímann. Þegar stundin loks rann upp fylgdist öll þjóðin með. Fyrir það á hann miklar þakkir skildar. Síðast en ekki síst vil ég þakka íbúum fyrir þolinmæðina og fyrir að taka svona vel á móti öllum þeim fjölda fólks sem heimsótti okkur. Fyrir rúmlega tveimur árum hófum við undirbúning að atburði sem við vissum í raun ekki hvernig myndi líta út. Nú vitum við það. Þegar ég lít til baka held ég að við getum leyft okkur að segja að þetta hefði vart getað gengið betur. Eftir stendur fyrst og fremst stolt og þakklæti yfir því hvernig samfélagið tók á móti verkefninu og hvernig allir lögðust á eitt. 12. ágúst 2026 verður lengi í minnum hafður. Höfundur er bæjarstjóri Vesturbyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vesturbyggð Látrabjarg Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar