Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Aron Guðmundsson skrifar 24. ágúst 2026 10:02 Gianni Infantino, forseti FIFA hefur verið harðlega gagnrýndur upp á síðkastið en ætlar sér endurkjör á komandi þingi FIFA í mars á næsta ári. Vísir/Getty Aleksander Ceferin, forseti UEFA, mun ekki bjóða sig fram gegn Gianni Infantino, sitjandi forseta FIFA en býst þó við því að framboð muni koma fram.
Infantino hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að hafa sett fram, án nokkurs fyrirvara eða samtals við aðildarþjóðir FIFA, áætlun um að fá inn utanaðkomandi fjárfestingu í innviðum sambandsins. UEFA hefur verið einna harðast í andspyrnunni gegn Infantino og þrýstu aðildarþjóðir sambandsins á hann að draga til baka áætlun sína meðal annars með því að hóta sniðgöngu á mótum á vegum FIFA. Aleksander Ceferin er forseti evrópska knattspyrnusambandsins.Vísir/Getty Horft hefur verið á Ceferin sem mögulegan eftir mann Infantino í embætti en hann segir það ekki á döfinni hjá sér að bjóða sig fram á komandi þingi FIFA í mars á næsta ári þar sem Infantino ætlar hins vegar að bjóða sig fram til endurkjörs. „Ég hef ekki áhuga á þessu embætti og fyrir því eru tvær ástæður,“ segir Ceferin í hlaðvarinu The Rest is Politics. „Ég elska UEFA og að starfa þar. Þá er trúverðugleikinn minn mun meiri ef ég segi það bara hreint út að ég hafi ekki áhuga á þessu embætti.“ Ceferin býst annað hvort við því að Infantino muni á endanum stíga til hliðar vegna skorts á stuðningi í embætti eða eiga fyrir höndum kosningabaráttu gegn öðrum frambjóðanda. „Ég tel að við munum vera með mótframbjóðanda gegn honum þar. Ég veit hins vegar ekki á þessari stundu hver það verður.“ Hægt er að hlusta á viðtalið við Aleksander Ceferin, forseta UEFA í The Rest is Politics, í fullri lengd hér:
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira