Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ Sindri Sverrisson skrifar 25. ágúst 2026 16:02 Samuel Eto'o og Gianni Infantino á FIFA-þinginu í Paragvæ í maí í fyrra. Getty/Buda Mendes Á meðan að sífellt fleiri draga til baka stuðning sinn við FIFA-forsetann Gianni Infantino, eða lýsa yfir vantrausti gagnvart honum, þá nýtur hann stuðnings í Afríku og nú hefur gamla Barcelona-goðsögnin Samuel Eto‘o, formaður knattspyrnusambands Kamerún, lagt orð í belg.
Eto‘o er allt annarrar skoðunar en til að mynda KSÍ og knattspyrnusambönd Evrópu, Asíu og Mið- og Norður-Ameríku, sem öll hafa lýst yfir áhyggjum af stefnu FIFA undir stjórn núverandi forseta. Þrátt fyrir að Infantino hafi nú dregið til baka áætlanir sínar um að selja hlut í mótum FIFA, þar á meðal HM, til einkaaðila þá er hann afar valtur í sessi. Búist er við því að hann fái að minnsta kosti mótframborð á þingi FIFA í mars á næsta ári, verði honum ekki bolað úr starfi fyrr. Eto‘o telur hins vegar um aðför að Infantino að ræða sem sé af pólitískum toga. „Ég held að Gianni Infantino forseti hafi ekki gert neitt rangt,“ sagði Eto‘o sem á sínum tíma var framherji liða á borð við Barcelona, Inter og Chelsea. „Ég held að tímasetningin sé bara vegna þess að það styttist í kosningar,“ sagði Eto‘o í viðtali við CNN. Knattspyrnusamband Afríku lýsti fyrr í þessum mánuði yfir stuðningi við Infantino og ljóst er að hugmyndir hans um að selja hlut í HM, sem skila myndi vænni greiðslu til allra 211 aðildarsambanda FIFA, falla ekki alls staðar jafnilla í kramið. „Gianni Infantino forseti hefur breytt fótboltanum. Hann gaf þjóðum tækifæri sem hafa ekki átt möguleika á að komast á stærsta og fallegasta mótið, HM. Hann gerði minni þjóðum kleift að komast á þessi mót. Hann hefur hjálpað okkar heimsálfu. Hann hefur hjálpað okkar samböndum að þróast mun hraðar og við verðum að viðurkenna það. Við verðum að sýna þakklæti vegna þess sem hann hefur gert og ættum að styðja hann fyrir allt sem hann hefur gert,“ sagði Eto‘o.
Deilur um Gianni Infantino FIFA Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira