Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Andri Broddason skrifar 26. ágúst 2026 15:17 Serena Williams og Carlos Alcaraz léku saman í tvenndarleik á Opna bandaríska risamótinu í tennis. Sarah Stier/Getty Images Opna bandaríska risamótið í tennis er hafið og einkennist mótið af endurkomum. Serena Williams og Carlos Alcaraz léku saman í tvenndarleik þar sem Serena Williams var að keppa á Opna bandaríska mótinu í fyrsta skipti síðan árið 2022. Alcaraz var að spila í fyrsta skipti í fimm mánuði þar sem hann er búinn að vera frá keppni vegna meiðsla.
Nýtt fyrirkomulag á tvenndarleik á Opna bandaríska risamótinu í tennis var fyrst leikið á síðasta ári. Þá var keppnin færð vikuna fyrir einliðaleikskeppnina og er keppnin blanda af einliðaleiksspilurum sem eru hæstir á styrkleikalista og síðan eru keppendur valdir í mótið. Þetta nýja fyrirkomulag var leikið í annað skipti í vikunni þar sem keppni hófst á þriðjudaginn. Tvenndarleiksparið sem vakti mesta athygli var lið Serenu Williams og Carlos Alcaraz. Bæði að snúa aftur eftir mislanga bið Serena Williams er að snúa aftur á Opna bandaríska risamótið í fyrsta skiptið síðan árið 2022 þegar hún gaf það út að hún ætlaði að leggja spaðann á hilluna. Síðan þá hefur hún haldið sig frá tennis þangað til á Wimbledon-risamótinu í sumar þegar hún snéri aftur í einliðaleik. Þar meiddist hún í fyrsta leik og átti erfitt með að halda áfram keppni. Hún ætlar þó ekki að spila einliðaleik á Opna bandaríska risamótinu í ár. Hún mun þó spila með systur sinni, Venus Williams, í tvíliðaleik. Carlos Alcaraz er að snúa aftur á tennisvöllinn eftir meiðsli en hann spilaði síðasta keppnisleikinn sinn í apríl. Eftir fyrsta leikinn sem Alcaraz og Williams unnu sagðist Alcaraz hafa verið mjög stressaður. Hann klúðraði fyrstu tveim uppgjöfunum sínum en því lengur sem hann var inni á vellinum því betur leið honum. Í leiknum brostu þau bæði út að eyrum og voru greinilega að njóta þess að spila hvort með öðru fyrir framan þá 15.000 áhorfendur sem voru að hvetja þau áfram. „Ég er að spila með hinni einu sönnu Serenu Williams, hvernig er annað hægt? Ég verð bara að njóta og ég reyni að gera hlutina sem hún segir mér að gera,“ sagði Alcaraz í viðtali milli setta í fyrsta leiknum. Alcaraz ætlar að verja titilinn sinn Alcaraz og Williams unnu fyrsta leikinn sinn en náðu ekki að vinna seinni leikinn og duttu því út í 8-liða úrslitum. Þau voru þó bæði sátt með að hafa snúið aftur á völlinn og virtust njóta þess að spila fyrir framan áhorfendurna í New York sem voru mættir að styðja þau. Williams er ekki búin að útiloka það að spila á fleiri mótum í einliðaleik og getur nýtt þessa reynslu í að gera sig klára í það. Carlos Alcaraz gaf það út í síðustu viku að hann tæki þátt í Opna bandaríska risamótinu og ætlaði að verja titilinn sinn. Hann missti af bæði Opna franska risamótinu og Wimbledon-risamótinu vegna meiðsla.
Tennis Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sparkað í punginn á dómaranum Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Sjá meira