Tim Curry er látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. ágúst 2026 15:45 Tim Curry er án efa þekktastur fyrir hlutverk sitt í The Rocky Horror Picture Show. Getty Breski leikarinn Tim Curry er látinn, 80 ára að aldri. Curry átti tæplega sextíu ára farsælan leikaraferil en er þekktastur fyrir sitt fyrsta hlutverk á stóra skjánum sem Dr. Frank-N-Furter í söngleikamyndinni The Rocky Horror Picture Show.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá andláti Curry og hefur eftir heimildum að leikarinn hafi andast á heimili sínu í Los Angeles á þriðjudagskvöld eftir að hafa glímt við alvarleg veikindi undanfarin ár. Dánarorsök Curry liggur ekki fyrir en hins vegar er ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Einkennandi bros og kröftug nærvera Timothy James Curry fæddist 19. apríl 1946 í bænum Grappenhall í Cheshire-sýslu á Bretlandi og útskrifaðist með BA-gráðu í ensku og leiklist frá Háskólanum í Birmingham árið 1968. Hann hóf í kjölfarið að leika á sviði í Bretlandi áður en hann færði sig yfir í sjónvarp og kvikmyndir. Frumraun Curry í Hollywood var söngleikjamyndin The Rocky Horror Picture Show (1975) þar sem hann fór með hlutverk hins goðsagnakennda Dr. Frank-N-Furter. Myndin fékk dræmar viðtökur í fyrstu en festi sig síðan í sessi sem költklassík. Curry átti farsælan og fjölbreyttan feril þar sem hann lék í meira en þrjátíu leikverkum á sviði, rúmlega þrjátíu kvikmyndum og meira en fjörutíu sjónvarpsþáttaseríum. Hann varð einna þekktastur fyrir að leika illmenni og gerði það meðal annars í söngleikjamyndinni Annie árið 1982 og tveggja þátta aðlögun ABC á hrollvekjunni IT eftir Stephen King árið 1990 þar sem hann fór með hlutverk morðóða trúðsins Pennywise. Einnig fór hann með hlutverk móttökustjórans Mr Hector í Home Alone 2 frá árinu 1992. Þá muna eflaust margir eftir honum úr gamanmyndinni Clue (1985), fantasíunni Legend (1985), riddaramyndinni The Three Musketeers (1993), gamanmyndinni Addams Family Reunion (1998) og grínmyndinni Scary Movie 2 (2001). Curry var í þrígang tilnefndur til Tony-verðlauna, árið 1981 fyrir leik sinn sem Wolfgang Amadeus Mozart í Amadeus, árið 1993 fyrir leik sinn sem Alan Swann í My Favorite Year og árið 2005 fyrir leik sinn sem Artúr konungur í söngleiknum Monty Python’s Spamalot, en laut í lægra haldi í öll skiptin. Curry fékk alvarlegt heilablóðfall árið 2012 og þurfti að fara í heilaskurðaðgerð vegna þess. Hann lifði eftir það með skerta hreyfigetu og glímdi við erfið veikindi síðustu ár sín.
Andlát Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Lífið samstarf Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira