Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2026 10:48 Jensen Huang, forstjóri Nvidia, segist búast við því að tekjur fyrirtækisins muni aukast um sjötíu prósent á næsta ári. Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni þessa verðmætasta fyrirtækis heims. AP/Jeffrey McWhorter Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni bandaríska tæknifyrirtækisins Nvidia, sem er verðmætasta fyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess birtu í gær ársfjórðungsuppgjör sem fór fram úr björtustu vonum greinenda og ýtti til hliðar áhyggjum fjárfesta hvað varðar eftirspurn eftir tölvuflögum fyrirtækisins fyrir gervigreind en fyrirtækið hefur hagnast gífurlega á slíkri framleiðslu.
Nvidia framleiddi lengst af að mestu skjákort en reksturinn gengur nú að miklu leyti út á það að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind. Uppgjörið sem birt var í gær nær til maí, júní og júlí en á þeim þremur mánuðum voru tekjur fyrirtækisins 96,2 milljarðar dala. Það samsvarar um 11,6 billjónum (tólf núll) króna. Frá sama tímabili í fyrra jukust tekjurnar um 108 prósent. Aukningin var 18 prósent frá síðasta ársfjórðungi. Hagnaður Nvidia á öðrum ársfjórðungi var 59,7 milljarðar dala, eða um 7,2 billjónir króna. Landsframleiðsla Íslands í fyrra var tæpar fimm billjónir króna. Áhugasamir geta virt uppgjörið fyrir sér hér á vef Nvidia. Í frétt CNBC segir að virði hlutabréfa Nvidia hafi aukist nokkuð eftir birtingu uppgjörsins en það á einnig við önnur fyrirtæki sem framleiða tölvubúnað sem er mikið notaður af gervigreindarfyrirtækjum. Fjárfestar hafa óttast of mikla skuldsetningu í gervigreindargeiranum og að mörg fyrirtæki sem tengjast honum séu að lána hvert öðru til fjárfestinga. Uppgjörið og ummæli Jensen Huang, forstjóra, um að eftirspurnin væri enn að aukast, virðast hafa slegið á þann ótta. Huang spáði sjötíu prósenta tekjuaukningu á næsta ári, sem er mun meira en fyrri spár höfðu gert ráð fyrir. Hann sagði einnig að aukningin gæti orðið meiri en skortur á tölvuminni héldi aftur af markaðinum. Sex hundruð billjóna virði Virði hlutabréfa Nvidia hefur hækkað gífurlega í virði á undanförnum árum, samhliða miklum vexti í gervigreindargeiranum. Fyrirtækið framleiðir tölvubúnað sem er einkar vinsæll í gagnaver sem notuð eru til að keyra mállíkön heimsins. Þar er um að ræða örflögur og skjákort, sem eru sérstaklega vinsæl þegar kemur að gagnaverum fyrir gervigreind. Sjá einnig: Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Í lok ársins 2022 var virði Nvidia um fjögur hundruð milljarðar dala. Nú er það rúmlega fimm billjóna dala virði en það samsvarar, lauslega reiknað, rúmlega sex hundruð billjónum króna.
Gervigreind Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira